Victoria Beckham, fatahönnuður og fyrrverandi Kryddpía, er ástfangnari sem aldrei fyrr. Frá þessu greinir hún í viðtali sem birtist á síðum ástralska Vogue nú á dögunum. Engin önnur en Nicole Kidman ræddi við Beckham fyrir hönd tískutímaritsins.
„Ég elska að verja tíma með eiginmanni mínum. David Beckham er mjög fyndinn. Ég á eiginmann sem ég er yfir mig ástfangin af,“ sagði Beckham er hún var spurð út í hjónaband hennar og fyrrverandi knattspyrnumannsins.
Beckham-hjónin fögnuðu 25 ára brúðkaupsafmæli sínu í byrjun júlí. Þau gengu í það heilaga við glæsilega og íburðarmikla athöfn þann 4. júlí 1999.
Beckham gaf Kidman örlitla innsýn inn í hjónalífið og sagði lykilinn að farsælu hjónabandi þeirra vera gleði, hlátur og stuðning.
„Í gærkvöldi sagði ég við hann [David] og börnin: „Eftir 25 ár þá elska ég pabba ykkar, ég styð hann í einu og öllu og vil að hann sé ávallt besta útgáfan af sjálfum sér.“