Á djamminu eftir ásakanir um framhjáhald með danskri konu

Tommy Fury og Molly-Mae Hague voru trúlofuð og eiga saman …
Tommy Fury og Molly-Mae Hague voru trúlofuð og eiga saman eitt barn. Skjáskot/Instagram

Nýj­ar vend­ing­ar hafa orðið í máli Love Is­land-stjarn­anna Molly-Mae Hague og Tommy Fury sem virðast varpa skýr­ari mynd á hvað hafi valdið sam­bands­slit­um sem þau til­kynntu í fyrra­dag. 

Aðdá­end­ur fyrr­ver­andi pars­ins virðast enn vera í áfalli yfir fregn­un­um sem komu eins og þruma úr heiðskýru lofti, en mikl­ar vanga­velt­ur og hinar ýmsu kenn­ing­ar hafa verið á sveimi und­an­farna sól­ar­hringa. 

Sagður hafa haldið fram­hjá með danskri konu

Í gær greindu bresk­ir miðlar frá því að Fury væri sagður hafa haldið ít­rekað fram­hjá Hague. Nú hafa heim­ild­ar­menn The Sun greint frá því að meint fram­hjá­hald hafi átt sér stað þegar Fury var í fríi í Makedón­íu og að kon­an hafi verið dönsk. 

Þá er Hague sögð hafa spurt Fury út í at­vikið, en hann hafi ekki getað neitað ásök­un­um. Í kjöl­farið hafi hún svo slitið sam­bandi þeirra og Fury yf­ir­gefið fjöl­skyldu­heim­ili þeirra. Þá greindi heim­ildamaður­inn einnig frá því að Hague teldi að danska kon­an gæti ein­ung­is verið topp­ur­inn á ís­jak­an­um og að fleiri kon­ur ættu eft­ir að stíga fram. 

Aft­ur mætt­ur á djammið í Makedón­íu

Net­heim­ar loga enn vegna máls­ins og virðist mik­il reiði ríkja í garð Fury. Þá er hann sagður halda því fram að ásak­an­irn­ar séu rang­ar og er sagður hrædd­ur vegna þeirra. 

Það virðist þó aðeins hafa bætt gráu ofan á svart þegar mynd­ir birt­ust af Fury á djamm­inu á næt­ur­klúbbn­um INClusi­ve í Ohrid, og þá sér­stak­lega þegar í ljós kom að hann sé stadd­ur í Makedón­íu ásamt vin­um sín­um, þar sem fram­hjá­haldið er sagt hafa átt sér stað. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Sporðdreki

Sign icon Þér gefst tækifæri til þess að bæta heilsuna á einhvern hátt í dag. Gerðu þér far um að hitta aðra og svaraðu heimboðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Hall­dórs­dótt­ir
3
Col­leen Hoo­ver
5
Satu Rämö
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Sporðdreki

Sign icon Þér gefst tækifæri til þess að bæta heilsuna á einhvern hátt í dag. Gerðu þér far um að hitta aðra og svaraðu heimboðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Hall­dórs­dótt­ir
3
Col­leen Hoo­ver
5
Satu Rämö