Ný raunveruleikasería skekur Bandaríkin

Nýjar húsmæður mættar á skjáinn.
Nýjar húsmæður mættar á skjáinn. Skjáskot/Instagram

Ný banda­rísk raun­veru­leikasería, The Secret Li­ves of Mormon Wi­ves, hef­ur vakið mikla at­hygli síðustu daga, en fyrsti þátt­ur­inn fór í loftið þann 6. sept­em­ber síðastliðinn. 

Þáttaserí­an, sem fjall­ar um áhrifa­valda sem til­heyra Kirkju Jesú Krists hinna síðari daga heil­ögu, er sögð eiga eft­ir að heilla og hneyksla sjón­varps­áhorf­end­ur, en í þátt­un­um verður meðal ann­ars farið ofan í saum­ana á kyn­lífs­hneyksli inn­an kirkj­unn­ar. 

Fylgst verður með lífi átta kvenna inn­an trú­ar­hóps­ins í Utah, líkt og er gert í The Real Hou­sewi­ves.

Þætt­irn­ir eru sagðir gefa nokkuð sanna mynd af lífi mormóna í Banda­ríkj­un­um, en trú­ar­hóp­ur­inn legg­ur til að mynda mikla áherslu á út­lit og glæsi­leika kvenna, en marg­ar gang­ast und­ir lýtaaðgerðir til að falla und­ir hefðbundna fegr­un­arstaðla. 

Mormóna­kirkj­an var stofnuð af Joseph Smith á fyrri hluta 19. ald­ar í Banda­ríkj­un­um og telja safnaðarfé­lag­ar ríf­lega 16 millj­ón­ir á heimsvísu. Mormón­ar eru krist­inn trú­flokk­ur og trúa að þau ein séu end­urris­inn söfnuður Jesú Krists og að aðrir trú­ar­hóp­ar hafi villst af leið. 

mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Vatnsberi

Sign icon Þú velur vandlega fólkið sem þú umgengst. Njóttu lífsins en gættu þess um leið að láta ekki ástríðurnar ræna þig allri skynsemi.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
2
Birgitta H. Hall­dórs­dótt­ir
3
Col­leen Hoo­ver
4
Satu Rämö
5
Lotta Lux­en­burg
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Vatnsberi

Sign icon Þú velur vandlega fólkið sem þú umgengst. Njóttu lífsins en gættu þess um leið að láta ekki ástríðurnar ræna þig allri skynsemi.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
2
Birgitta H. Hall­dórs­dótt­ir
3
Col­leen Hoo­ver
4
Satu Rämö
5
Lotta Lux­en­burg