Jóhann tekur við plötubúðinni

Reynir Berg Þorvaldsson, stofnandi Reykjavík Record Shop, og Jóhann Ágúst …
Reynir Berg Þorvaldsson, stofnandi Reykjavík Record Shop, og Jóhann Ágúst Jóhannsson, nýr eigandi verslunarinnar. mbl.is/Eyþór

„Sumir kaupa sér stóran jeppa eða sumarbústað. Ég ákvað að kaupa mér plötubúð. Maður á að láta drauma sína rætast,“ segir Jóhann Ágúst Jóhannsson, nýr eigandi Reykjavík Record Shop við Klapparstíg.

Jóhann hefur fest kaup á búðinni af Reyni Berg Þorvaldssyni stofnanda hennar sem hyggst snúa sér alfarið að kennslu. Hann tekur við rekstri búðarinnar í dag og lætur jafnframt af störfum sem forstöðumaður Menningarstofu Fjarðabyggðar en þar hefur hann verið síðustu fimm árin við góðan orðstír.

„Það hefur verið mikið ævintýri að vera fyrir austan og skemmtilegt að vera þátttakandi í menningarlífinu þar. Maður kemur suður á ný hokinn af reynslu,“ segir Jóhann.

Tónlistarbransinn togaði í Jóhann sem starfaði lengi hjá Eddu útgáfu og 12 tónum á árum áður. „Reykjavík Record Shop er flott verslun og vel rekin enda hefur Reynir lagt líf og sál í þetta. Verslunin verður tíu ára í næsta mánuði og Reynir hefur rekið útgáfu meðfram henni. Vonandi að maður geti gefið eitthvað út samhliða því að reka plötubúð með notað og nýtt. Maður hefur alla vega reynslu af því,“ segir Jóhann sem kveðst heppinn að eiga skilningsríka fjölskyldu sem geri honum kleift að takast á við nýtt ævintýri.

Jóhann segir aðspurður að það sé sannarlega ekki tímaskekkja að fara að reka plötubúð nú á dögum þegar streymisveitur tröllríða öllu. Mikil vakning hafi verið í vínylplötumenningu. „Það er mjög góð heilun að setja vínylplötu á fóninn, maður nær gjarnan að jarðtengja sig. Tónlistin lifir á öllum formum en vínyllinn er drottningin. Það toppar ekkert þá gæðastund að setjast niður með kaffi og setja Bowie á fóninn, eins og meistarinn sagði.“

Nánar er rætt við Jóhann í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú kemst ekki upp með neitt þessa dagana og á því að leggja spilin á borðið. Treystu innsæi þínu og láttu það eftir þér að gera það sem þig langar.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Ragnar Jónasson
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Jojo Moyes
5
Moa Herngren
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú kemst ekki upp með neitt þessa dagana og á því að leggja spilin á borðið. Treystu innsæi þínu og láttu það eftir þér að gera það sem þig langar.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Ragnar Jónasson
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Jojo Moyes
5
Moa Herngren