Bandaríski metsölurapparinn Marshall Mathers, sem flestir þekkja betur sem Eminem, er að verða afi.
CNN greinir frá.
Tilkynnti hann fréttirnar með spánnýju tónlistarmyndbandi lagsins Temporary sem hann vann með söngkonunni Skylar Grey.
Á einum tímapunkti í tónlistarmyndbandinu sést dóttir rapparans, Hailie Jade, gefa föður sínum bláan bol sem er merktur afi.
Sést þá rapparinn taka hissa á móti og halda á sónarmynd af komandi barnabarni sínu.
Í tónlistarmyndbandinu eru klipptar saman myndir og myndbrot af heimilum rapparans og dóttur hans Hailie í gegnum tíðina en ásamt því sjást einnig myndbrot úr brúðkaupi hennar.
Eminem tileinkar dóttur sinni lagið sem í kjölfar útgáfu þess birti myndir á miðlinum Instagram af sjálfri sér ásamt eiginmanni sínum, Evan McClintock, þar sem þau tilkynna að von er á barninu á næsta ári.