Þekktur gítarleikari skotinn mörgum sinnum

Lee er vel þekktur í rokkheiminum.
Lee er vel þekktur í rokkheiminum. Skjáskot/rocknrolljournalist

Bandaríski tónlistarmaðurinn Jake E. Lee, best þekktur sem gítarleikari Ozzy Osbourne sem og rokksveitarinnar Red Dragon Cartel, var skotinn margsinnis er hann var á göngu með hundinn sinn í borginni Las Vegas aðfaranótt þriðjudags.

Ekki er vitað um ástæðuna að baki árásinni en að sögn lögreglu þá slapp gítarleikarinn, sem er 67 ára, nokkuð vel. Talið er að hann muni ná sér að fullu.

Enn er enginn grunaður um verknaðinn en málið er í rannsókn og er meðal annars verið að skoða gögn úr eftirlitsmyndavélum á svæðinu.

Umboðsmaður tónlistarmannsins ræddi við The Associated Press í kjölfar árásarinnar og sagði það afar heppilegt að byssukúlurnar hefðu ekki hæft mikilvæg lífffæri. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að gera einhverjar ráðstafanir varðandi heilsu þína og ekki draga það of lengi. Það er í góðu lagi að gera lítið sem ekkert í einhvern tíma.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
2
Ragnar Jónasson
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að gera einhverjar ráðstafanir varðandi heilsu þína og ekki draga það of lengi. Það er í góðu lagi að gera lítið sem ekkert í einhvern tíma.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
2
Ragnar Jónasson
3
Birgitta H. Halldórsdóttir