Woody Allen fagnaði útgáfu nýs erótísks tímarits

Woody Allen leikstjóri.
Woody Allen leikstjóri. Ljósmynd/AFP

Bandaríski leikstjórinn Woody Allen kom mörgum að óvörum á þriðjudag þegar hann mætti ásamt eiginkonu sinni, Soon Yi Previn, í útgáfuhóf sem haldið var í tilefni af útgáfu nýs tímarits, titlað A Fucking Magazine, sem gefið er út af samskiptaforritinu Feeld.

Forritið, sem er stefnumótaforrit, sérhæfir sig í að tengja saman fólk með kynferðislegar fantasíur og er umfjöllunarefni tímaritsins af svipuðum toga.

Allen, eitt sinn áberandi í næturlífssenu Hollywood, hvarf úr sviðsljósinu í nokkur ár eftir að ásakanir um misnotkun á ættleiddri dóttur hans komu til umræðu á ný í kjölfar metoo-byltingarinnar.

Allen, sem er 88 ára, var hress í bragði og gaf sér tíma til að spjalla við gesti, en leikstjórinn stoppaði þó stutt við.

Fjölmargir mættu í hófið sem haldið var á heimili bókmenntagagnrýnandans Daphne Merkin í New York-borg, en á meðal gesta voru Candice Bushnell, best þekkt fyrir Sex and the City-bókaflokkinn, blaðakonan Molly Jong-Fast og listmálarinn David Salle.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að gera einhverjar ráðstafanir varðandi heilsu þína og ekki draga það of lengi. Það er í góðu lagi að gera lítið sem ekkert í einhvern tíma.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
2
Ragnar Jónasson
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að gera einhverjar ráðstafanir varðandi heilsu þína og ekki draga það of lengi. Það er í góðu lagi að gera lítið sem ekkert í einhvern tíma.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
2
Ragnar Jónasson
3
Birgitta H. Halldórsdóttir