Drake kominn með nýja hárgreiðslu

Drake ásamt sjö ára syni sínum Adonis, sem hann á …
Drake ásamt sjö ára syni sínum Adonis, sem hann á með fyrrverandi klámmyndaleikkonunni Sophie Brussaux. Instagram/Skjáskot

Rapparinn Drake frumsýndi nýtt útlit á samfélagsmiðlinum Instagram í vikunni þegar hann skartaði stelpulegri hárgreiðslu.

Það er ekki í frásögur færandi að rapparinn sé með nýja hárgreiðslu en hins vegar hefur hann aldrei farið þá leið að vera með fléttaða tíkarspena. Og sitt sýndist hverjum um útlitið.

Einn spurði af hverju hann líktist kvenkyns karakter úr kvikmyndinni The Polar Express.

Myndina setti hann inn í Instagram-söguna sína þann 15. október. Hann var í gallaklæðnaði og hvítum Nike Air Force 1-skóm. Klæðnaður Drake féll þó í skuggann af hárgreiðslunni sem vakti enn meiri athygli.

Það eru ekki allir sammála um hve aðlaðandi útlit Drake …
Það eru ekki allir sammála um hve aðlaðandi útlit Drake sé á þessari mynd. Instagram/Skjáskot

E News.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Ekki afsala þér öllu í dag og ekki búast við of miklu frá öðrum. Líttu í spegil og segðu sjálfum þér að þú sért frábær.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
2
Ragnar Jónasson
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Ekki afsala þér öllu í dag og ekki búast við of miklu frá öðrum. Líttu í spegil og segðu sjálfum þér að þú sért frábær.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
2
Ragnar Jónasson
3
Birgitta H. Halldórsdóttir