Brast í grát á miðjum tónleikum

Tónlistarkonan Adele.
Tónlistarkonan Adele. Skjáskot/Instagram

Breska söngkonan Adele brast í grát á tónleikum sínum í Las Vegas á laugardagskvöldið þegar hún kom auga á eitt af átrúnaðargoðum sínum í áhorfendasalnum.

Kanadíska stórstjarnan Celine Dion var meðal þeirra fjölmörgu sem sóttu tónleika Adele á Caesars Palace-hótelinu á laugardagskvöldið.

Adele var í miðjum flutningi á laginu When We Were Young þegar hún rak augun í Dion og átti í mestu vandræðum með að halda flutningi sínum áfram. Hún gekk rakleitt að Dion og tók utan um hana.

Myndskeið af augnablikinu hefur farið eins og eldur í sinu um samfélagsmiðla. 

Viðvera Dion á tónleikunum gladdi ekki aðeins Adele heldur aðdáendur hennar um allan heim þar sem söngkonan hefur að mestu dregið sig í hlé frá öllu tónleikahaldi eftir að hún greindist með sjaldgæfa taugaröskun (e. Stiff Person Syndrome) í ágúst 2022. 

Dion kom þó mörgum á óvart þegar hún samþykkti að syngja á opnunarhátíð Ólymp­íu­leik­anna í Par­ís nú í sumar. Söngkonan heillaði heiminn með flutningi sínum á laginu L'Hymne à l'amour. 

Tónleikaröð Adele í Las Vegas fer brátt að líða undir lok en lokatónleikar hennar verða haldnir þann 23. nóvember næstkomandi. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Hafðu hugfast að þarfir fólks eru mismunandi svo það sem er þér fyrir bestu þarf ekki að eiga við um aðra. Mundu að það er stundum í lagi að vera eigingjarn og hugsa fyrst um eigið skinn.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Steindór Ívarsson
2
Carla Kovach
3
Kolbrún Valbergsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Hafðu hugfast að þarfir fólks eru mismunandi svo það sem er þér fyrir bestu þarf ekki að eiga við um aðra. Mundu að það er stundum í lagi að vera eigingjarn og hugsa fyrst um eigið skinn.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Steindór Ívarsson
2
Carla Kovach
3
Kolbrún Valbergsdóttir