IceGuys mæta aftur á skjáinn

Strákasveitin hefur notið mikla vinsældu síðustu misseri.
Strákasveitin hefur notið mikla vinsældu síðustu misseri. Ljósmynd/Baldur Kristjáns

Um síðustu áramót var greint frá því að IceGuys myndu snúa aftur á skjáinn og nú er loksins komið að því, en IceGuys 2 koma í Sjónvarp Símans Premium í lok nóvember og geta aðdáendur stákahljómsveitarinnar því byrjað að telja niður dagana.

Fyrsta þáttaröðin endaði með dramatískum hætti þar sem Aron Can stakk af með alla peninga sveitarinnar og hinir meðlimir sveitarinnar sátu eftir með sárt ennið og vissu ekkert hvað varð um vin þeirra, Aron Can.

„Við hjá Símanum erum full tilhlökkunar að frumsýna glænýja þáttaröð af IceGuys. Strákarnir eru nýbúnir að selja upp fimm Laugardalshallir fyrir jólatónleikana sína og því tilvalið fyrir IceGang aðdáendahópinn að byrja snemma með sannarlega stórkostlegri þáttaröð.

Gleði og hlátur hafa einkennt IceGuys frá byrjun og er þessi þáttaröð engin undantekning. Við getum ekki beðið eftir því að miðla gleðinni beint heim í stofu,“ segir María Björk Einarsdóttir, forstjóri Símans.

„Stór og ísköld áskorun að kafa dýpra“

Þættirnir eru sem fyrr í leikstjórn Allans Sigurðssonar, Hannesar Þórs Arasonar og Hannesar Þórs Halldórssonar, en fyrirtækið Atlavík sem er í eigu leikstjóranna fer með framleiðsluna á þáttunum. Handritshöfundur þáttana er svo enginn annar en Sóli Hólm.

„Það var stór og ísköld áskorun að kafa dýpra í næsta fasa Iceguys sögunnar eftir rússíbana síðasta árs en það hafðist og hér erum við, Iceguys 2. Margir mánuðir fóru í þróunarferli, gríðarlegt púður var lagt í tökurnar og það er erfitt að lýsa metnaðinum og drifkraftinum sem liggur á bak við gerð þessara þátta.

IceGuys heimurinn er óútreiknanlegur og þar getur allt gerst. Í seríu 2 skiptum við um gír og keyrum allt í botn og við vonum að áhorfendur upplifi og skynji ástríðuna sem við lögðum öll í þetta verkefni,“ segir Hannes Þór Halldórsson. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Hafðu hugfast að þarfir fólks eru mismunandi svo það sem er þér fyrir bestu þarf ekki að eiga við um aðra. Mundu að það er stundum í lagi að vera eigingjarn og hugsa fyrst um eigið skinn.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Steindór Ívarsson
2
Carla Kovach
3
Kolbrún Valbergsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Hafðu hugfast að þarfir fólks eru mismunandi svo það sem er þér fyrir bestu þarf ekki að eiga við um aðra. Mundu að það er stundum í lagi að vera eigingjarn og hugsa fyrst um eigið skinn.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Steindór Ívarsson
2
Carla Kovach
3
Kolbrún Valbergsdóttir