Sigraði hrekkjuvöku sem Halla Tómasdóttir

Óneitanlega eru mikil líkindi með Metúsalem og Höllu.
Óneitanlega eru mikil líkindi með Metúsalem og Höllu. Samsett mynd

Ungur maður að nafni Metúsalem Björnsson, einnig þekktur sem Meddinn á TikTok, hefur hlotið mikið lof netverja fyrir hrekkjavökubúning sinn í ár, en hann kaus að heiðra forseta Íslands, Frú Höllu Tómasdóttur.

Metúsalem birti tvö stórskemmtileg myndskeið af sér í gervi forsetans á samfélagsmiðlasíðunni TikTok nýverið sem bæði fengu mikið áhorf, enda negldi hann útlit forseta vors, frá toppi til táar.

Hann klæddist ljósum buxum og sams konar toppi og var með bláan borða, nælu, perlufesti og að sjálfsögðu hálsklút, einkennismerki Höllu Tómasdóttur, sem setti punktinn yfir i-ið.

Í fyrra myndskeiðinu sést Metúsalem, í gervi Höllu, skála í hvítvín og setja upp friðarmerki, en í því seinna er hann mættur á skemmtistað og sést dansa og veifa til almennings.





mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Hafðu hugfast að þarfir fólks eru mismunandi svo það sem er þér fyrir bestu þarf ekki að eiga við um aðra. Mundu að það er stundum í lagi að vera eigingjarn og hugsa fyrst um eigið skinn.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Steindór Ívarsson
2
Carla Kovach
3
Kolbrún Valbergsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Hafðu hugfast að þarfir fólks eru mismunandi svo það sem er þér fyrir bestu þarf ekki að eiga við um aðra. Mundu að það er stundum í lagi að vera eigingjarn og hugsa fyrst um eigið skinn.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Steindór Ívarsson
2
Carla Kovach
3
Kolbrún Valbergsdóttir