Bandaríski söngvarinn Triston Harper, best þekktur fyrir þátttöku sína í 22. þáttaröð American Idol, á von á sínu fyrsta barni aðeins 16 ára gamall.
Harper greindi frá tíðindunum á Facebook-síðu sinni nú á dögunum og fékk fjöldann allan af hamingjuóskum frá aðdáendum sínum.
Ungi söngvarinn frá Alabama á von á barni með nýbakaðri eiginkonu sinni, hinni 17 ára gömlu Paris Reed, en parið gekk í hjónaband aðeins örfáum dögum áður en það greindi frá óléttunni.
Harper, sem er sveitasöngvari, vakti mikla athygli fyrir sérstæða söngrödd sína í þáttunum og endaði í 5. sæti hæfileikakeppninnar fyrr á árinu.