Bandaríska tímaritið People hefur svipt hulunni af kynþokkafyllsta manni í heimi. Leikarinn og leikstjórinn John Krasinski hlýtur heiðurinn í ár. Krasinski tekur við titlinum af leikaranum Patrick Dempsey sem var valinn sá kynþokkafyllsti á síðasta ári.
Krasinski skaust fram á sjónarsviðið þegar hann fór með hlutverk Jim Halpert í gamanþáttaseríunni The Office á árunum 2005 til 2013. Hann hefur einnig leikið í fjölmörgum kvikmyndum og getið sér gott orð sem leikstjóri og handritshöfundur. Krasinski leikstýrði meðal annars fyrstu tveimur A Quiet Place-myndunum.
Krasinski, sem er 45 ára, prýðir forsíðu nýjasta tölublaðs tímaritsins. Hann segist alls ekki hafa átt von á því að vera valinn en viðurkenndi að eiginkona hans, breska leikkonan Emily Blunt, væri himinlifandi með valið í ár.
Meðal þeirra sem áður hafa hlotið titilinn eru Chris Evans, Paul Rudd, Idris Elba, Michael B. Jordan, John Legend og Hugh Jackman.