Fetar í fótspor foreldra sinna

Fjölskyldan var glæsileg á rauða dreglinum.
Fjölskyldan var glæsileg á rauða dreglinum. Ljósmynd/AFP

Elsta barn tónlistarhjónanna Jay-Z og Beyoncé, hin 12 ára gamla Blue Ivy, var stórglæsileg á rauða dreglinum á frumsýningu kvikmyndarinnar Mufasa: The Lion King í Dolby-kvikmyndahúsinu í Los Angeles á mánudagskvöldið.

Stúlkan, sem talsetur hlutverk Kiöru, mætti í fylgd foreldra sinna og móðurömmu, Tinu Knowles.

Blue Ivy klæddist einstaklega fallegum kjól úr smiðju Christian Siriano.

Beyoncé deildi myndum af dóttur sinni á rauða dreglinum á Instagram-síðu sinni að lokinni frumsýningu.

„Fallega stúlkan mín. Þetta er kvöldið þitt. Þú lagðir hart að þér og talsettir hlutverk Kiöru fullkomlega. Fjölskyldan þín gæti ekki verið stoltari. Haltu áfram að skína, skrifaði söngkonan.

Fjölskyldan gekk rauða dregilinn aðeins einum degi eftir að Jay-Z var sakaður um að hafa nauðgað 13 ára gamalli stúlku, ásamt Sean „Diddy“ Combs, í samkvæmi hins síðarnefnda árið 2000.

Jay-Z, sem heit­ir réttu nafni Shawn Cart­er, vís­ar þessu á bug.

View this post on Instagram

A post shared by Beyoncé (@beyonce)

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þær eru ófáar gáturnar sem þú færð leyst með því að nálgast verkefnin opnum huga. Mættu hlutunum með bros á vör og leystu þá ljúfmannlega.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þær eru ófáar gáturnar sem þú færð leyst með því að nálgast verkefnin opnum huga. Mættu hlutunum með bros á vör og leystu þá ljúfmannlega.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar