Heldur fimmtugsafmælið í 2.400 fm villu á Tenerife

Athafnamaðurinn Ásgeir Kolbeinsson kann að meta góða afmælisveislu.
Athafnamaðurinn Ásgeir Kolbeinsson kann að meta góða afmælisveislu. Samsett mynd

At­hafnamaður­inn og mega­mó­gull­inn Ásgeir Kol­beins­son er ekki van­ur því að ráðast á garðinn þar sem hann er lægst­ur og sér­stak­lega ekki þegar kem­ur að veg­leg­um af­mæl­is­veisl­um. 

Ásgeir hef­ur lengi verið þekkt­ur sem mik­ill par­típ­inni og hef­ur komið að ófá­um viðburðunum. Þá rak hann og átti skemmti­staðinn Aust­ur á sín­um tíma.

Nú stefn­ir hann á að halda glæsi­legt fimm­tugsaf­mæli á Teneri­fe í janú­ar. Ásgeir býður öll­um helstu vin­um og vanda­mönn­um til þess að taka þátt í gleðinni. Af­mælið verður haldið með pompi og prakt en gestalist­inn nær yfir ein­hver þekkt­ustu nöfn lands­ins. Þar má finna allt frá stór­tæk­um fjár­fest­um og lög­fræðing­um yfir í áhrifa­valda og skemmtikrafta.

Villan er ein sú glæsilegasta sem finnst á Tenerife.
Vill­an er ein sú glæsi­leg­asta sem finnst á Teneri­fe. Ljós­mynd/​Aðsend

Á gestal­ist­an­um má meðal ann­ars finna: 

Ró­bert Wessman, Sverri Þór Sverris­son, FM95BLÖ-gengið, Ingu Lind Karls­dótt­ur, Rúrik Gísla­son, Hjörv­ar Hafliðason, Gústa B, Nínu Dögg Fil­ipp­us­dótt­ur, Vill­hjálm H. Vil­hjálms­son, Hreggvið Jóns­son, Aron Má Ólafs­son og Júlí­önu Söru Gunn­ars­dótt­ur svo ein­hver séu nefnd.

Villan býr meðal annars yfir heitum potti, gufu og sundlaug.
Vill­an býr meðal ann­ars yfir heit­um potti, gufu og sund­laug. Ljós­mynd/​Aðsend

Vara­heim­ili Íslend­inga

Aug­ljóst er að Ásgeir hef­ur lagt mik­inn metnað í viðburðinn en af­mælið er haldið í 2.400 fer­metra lúx­us villu. Það verður öllu tjaldað til fyr­ir þenn­an stóra áfanga. 

Í boðskorti fyr­ir viðburðinn seg­ir Ásgeir: „Þar sem Ísland í janú­ar hent­ar ekki vel til skemmt­ana­halds ut­an­dyra hef­ur verið ákveðið að her­leg­heit­in fari fram á vara­heim­ili allra Íslend­inga, Teneri­fe.”

Þá er ljóst að fimm­tugsaf­mælið verður með stærri af­mæl­is­veisl­um Íslend­inga árið 2025.

Það mun svo sannarlega ekki væsa um þá gesti sem …
Það mun svo sann­ar­lega ekki væsa um þá gesti sem fá að gista í vill­unni. Ljós­mynd/​Aðsend



mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Vatnsberi

Sign icon Þú velur vandlega fólkið sem þú umgengst. Njóttu lífsins en gættu þess um leið að láta ekki ástríðurnar ræna þig allri skynsemi.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
2
Birgitta H. Hall­dórs­dótt­ir
3
Col­leen Hoo­ver
4
Satu Rämö
5
Lotta Lux­en­burg
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Vatnsberi

Sign icon Þú velur vandlega fólkið sem þú umgengst. Njóttu lífsins en gættu þess um leið að láta ekki ástríðurnar ræna þig allri skynsemi.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
2
Birgitta H. Hall­dórs­dótt­ir
3
Col­leen Hoo­ver
4
Satu Rämö
5
Lotta Lux­en­burg