Kanadíska stórstjarnan Abel Tesfaye, betur þekktur undir tónlistarnafninu The Weeknd, segir að 2025 verði hans ár. Á tónleikum sínum á Spotify Billion Club Live í Los Angeles 17. desember deildi söngvarinn spennandi fréttum með aðdáendum sínum og lofaði bæði nýrri plötu, nýrri kvikmynd, tónleikaferðalagi og fleiru.
„2024 er næstum búið, en það eru nýir hlutir í vændum 2025 - þið megið búast við nýrri plötu, nýrri kvikmynd, tónleikaferðalagi, nýju allt,“ sagði The Weeknd við aðdáendur í salnum, án þess þó að gefa upp nákvæmar dagsetningar fyrir komandi verkefni.
Á tónleikunum flutti The Weeknd nokkur af sínum stærstu lögum, þar á meðal Starboy, Blinding Lights og Earned It, sem öll hafa náð yfir einum milljarði spilana á Spotify.
Tónleikunum lauk á kraftmiklum flutningi lagsins São Paulo, þar sem hann kvaddi aðdáendur með orðunum: „Við sjáumst árið 2025, það ár verður stórt.“
Áður en stórtíðindin voru tilkynnt á Spotify Billion Club Live hafði The Weeknd þegar kynnt nýju plötuna sína, Hurry Up Tomorrow, sem kemur út 24. janúar 2025. Platan er sú síðasta í þríleiknum sem hófst með After Hours og hélt áfram með Dawn FM.
Í tilkynningu um nýju plötuna í september lýsti The Weeknd henni sem tímamótaverki sem gæfi honum tækifæri til að horfast í augu við sjálfan sig. „Ég lít í spegilinn og sé bæði hið gamla og nýja. Ég er fastur einhvers staðar á milli og get ekki hreyft mig,“ sagði hann í yfirlýsingu á samfélagsmiðlum.
Aðdáendur um allan heim bíða nú spenntir eftir að sjá hvernig stórstjarnan mun miðla þessari persónulegu sögu og hvernig hún mun endurspegla hann á komandi ári.