TikTok heldur áfram að taka yfir samfélagsmiðla og vikulega spretta upp ný trend, grípandi myndbönd og skemmtilegar sögur. Hér eru þau TikTok-myndbönd sem slógu í gegn og stóðu upp úr í síðustu viku.
Birta Númadóttir birti skemmtilegt myndband af tónlistarmanninum Aron Can, einum af meðlimum IceGuys, og vakti það mikla athygli á TikTok. Það var nánast ómögulegt að skrolla í gegnum TikTok um helgina án þess að sjá myndbönd af IceGuys-tónleikunum sem fóru fram síðustu helgi.
Vert er að nefna þetta magnaða myndband frá IceGuys-tónleikunum sem fangar stemningu kvöldsins í öllu sínu veldi – IceGuys létu salinn gjörsamlega tryllast!
Hanna Björk Hilmarsdóttir sló í gegn á TikTok með skemmtilegu myndbandi þar sem hún sýnir frá fjölskylduævintýri þeirra um Kaliforníu.
Húbba Búbba-strákarnir, þeir Eyþór Aron Wöhler og Kristall Máni Ingason, hafa aldeilis látið til sín taka á TikTok á þessu ári og slegið í gegn hjá fylgjendum. Nú á dögunum settu þeir í gang ekta gleðiviðburð á Tenerife þegar þeir fengu hóp krakka með sér í að taka lagið.
TikTok-aðgangur nemendafélags Réttarholtsskóla hefur slegið rækilega í gegn með myndbandi sem kemur jólastemmingunni af stað. Í myndbandinu er gengið um skólaganganna með mistiltein í hönd, sem þýðir aðeins eitt: að þau sem standa undir honum verða að kyssast. Myndbandið sprakk út um allan heim og hefur nú safnað yfir níu milljónum áhorfa!
Sunneva Einarsdóttir og kærastinn hennar, Benedikt Bjarnason – eða Bensi eins og hann er oft kallaður, létu ekki sitt eftir liggja og tóku þátt í vinsælu TikTok-trendi. Þar sannaði Bensi styrk sinn með því að lyfta Sunnevu leikandi upp á axlir sínar.
Heiðdís Elva Stefánsdóttir deildi ótrúlega skemmtilegu myndbandi af hundinum sínum sem gjörsamlega tryllist þegar hún byrjar að spila fyrir hann tónlist. Í myndbandinu sést í hundinn byrja að hoppa og skoppa í takt við lagið og hefur það vakið mikla kátínu hjá fólki.