Þýska ofurfyrirsætan Heidi Klum fækkaði fötum áður en hún hélt út að leika sér í snjónum í smábænum Aspen í Colorado-fylki nú á dögunum. Klum er stödd í bandaríska skíðabænum ásamt eiginmanni sínum, tónlistarmanninum Tom Kaulitz, og börnum.
Klum lét kuldann ekki bíta sig og deildi myndskeiði af sér á Instagram-síðu sinni í gærdag sem sýnir hana á nærfötunum að kasta snjóbolta í þann sem heldur á myndavélinni. Nærfötin eru að sjálfsögðu rauð á litinn, í anda jólanna.
Fyrirsætan hefur verið dugleg að sýna frá jólahaldi fjölskyldunnar á samfélagsmiðlasíðunni og birti meðal annars myndir af fjölskyldunni á skíðum, við jólatréð á jóladagsmorgun og rómantískum göngutúr hennar og Kaulitz í snæviþöktum skógi.
Aspen er afar vinsæll áfangastaður á meðal ríka og fræga fólksins, sérstaklega yfir jólahátíðina, en stjörnuhjónin Goldie Hawn og Kurt Russell, söngkonurnar Mariah Carey, Rihanna og Jennifer Lopez og leikarinn Kevin Costner eru á meðal þeirra sem fögnuðu jólunum í smábænum.