Light My Fire-húsið brann til kaldra kola

Hljómsveitin The Doors lagði upp laupana árið 1973.
Hljómsveitin The Doors lagði upp laupana árið 1973. Skjáskot/Facebook

Húsið þar sem gít­ar­leik­ari rokksveit­ar­inn­ar The Doors, Robby Krie­ger, samdi eitt vin­sæl­asta og þekkt­asta lag sveit­ar­inn­ar, Lig­ht My Fire, brann til kaldra kola nú fyr­ir helgi sök­um gróðurelda sem geisa í út­hverfi Los Ang­eles-borg­ar í Kali­forn­íu.

Húsið, sem stóð við Alma Real Dri­ve í Pacific Palisa­des-hverf­inu og hafði verið í eigu hjón­anna Claudio og Kat­hleen Boltian­sky síðastliðin 24 ár, var eitt sinn í eigu for­eldra Krie­ger, sem samdi lagið í stofu húss­ins árið 1966.

Boltian­sky-hjón­in ræddu stutt­lega við blaðamann Los Ang­eles Times og sögðu at­b­urðinn og áfallið ólýs­an­legt. Hjón­in hyggj­ast end­ur­byggja heim­ili sitt við fyrsta tæki­færi.

Lig­ht My Fire, lag sem fjall­ar um ást og kyn­líf, er talið eitt af bestu rokk­lög­um tón­list­ar­sög­unn­ar. Lagið kom The Doors á kortið á sjö­unda ára­tugn­um og fór beint í topp­sæti Bill­bo­ard-list­ans og sat í þrjár vik­ur á toppn­um.

Fjöl­marg­ar stjörn­ur eru bú­sett­ar í Pacific Palisa­des-hverf­inu og hafa marg­ar þeirra þurft að yf­ir­gefa heim­ili sín á meðan aðrar hafa misst heim­ili sín í elds­voðanum.

Á meðal þeirra sem misst hafa heim­ili sín eru Ant­hony Hopk­ins, Jeff Bridges, John Goodm­an, Cary Elwes, Eu­gene Levy, John C. Reilly, Tina Know­les, Can­dy Spell­ing, Jenni­fer Grey, Anna Far­is, Miles Tell­er, James Woods, Billy Crystal, Par­is Hilt­on og Milo Ventimiglia.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Krabbi

Sign icon Þegir þú þegar þörf er á að þú leggir eitthvað til málanna? Þetta er mjög ólíkt þér. Best er að slappa af og njóta athyglinnar á meðan hún endist.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Stein­dór Ívars­son
3
Birgitta H. Hall­dórs­dótt­ir
5
Eva Björg Ægis­dótt­ir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Krabbi

Sign icon Þegir þú þegar þörf er á að þú leggir eitthvað til málanna? Þetta er mjög ólíkt þér. Best er að slappa af og njóta athyglinnar á meðan hún endist.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Stein­dór Ívars­son
3
Birgitta H. Hall­dórs­dótt­ir
5
Eva Björg Ægis­dótt­ir