Tónlistarmaðurinn Justin Bieber skildi lítið eftir fyrir ímyndunaraflið þegar hann deildi myndum af sér á Instagram í gær.
Á myndunum tveimur er Bieber á hvítum, gegnblautum Calvin Klein-nærbrókum einum fata og situr „sultuslakur“ og silkimjúkur í „Adirondack“-tréstól eftir að hafa fengið sér kaldan sundsprett.
Flúrskreyttur efri hluti Biebers blasir við á myndunum og hann undirstrikar tónaðan líkamann þar sem hann tyllir fótunum upp á lítið steinborð. Í bakgrunni sést áin sem hann dýfði sér í og snjóbreiðan allt um kring.
Þrátt fyrir að eiginkona hans, fyrirsætan Hailey Bieber, sé fjarverandi á myndunum þá eru þau saman í fríi í Aspen, Colorado.