Helgi Ómarsson, áhrifavaldur og stofnandi Helgaspjallsins, hefur ákveðið að kveðja hlaðvarpsheiminn í bili. Hann segir frá þessu á Instagram og tekur fram að honum þyki tilfinningin skrýtin.
Helgi byrjaði með hlaðvarpið árið 2018 og hefur tekið ótal viðtöl síðan. Hann hefur meðal annars lagt áherslu á að tala um ofbeldi í samböndum, hvernig á að setja mörk, sjálfbærni og andlega heilsu fólks. Hann segist ekki vita hvað taki við nú í framhaldinu en er vongóður um að eitthvað nýtt og spennandi taki við.
„Mér þykir mjög skrýtið að skrifa þetta, en af einhverjum óútskýranlegum ástæðum er það rétt. Eftir sjö ár af Helgaspjallinu hef ég ákveðið að kveðja hlaðvarpsheiminn í bili. Ég veit ekki hvort eða hvenær ég gæti hugsað mér að koma aftur, en eins og staðan er núna líður mér eins og það sé rétt fyrir mig.
Ég hef lagt hjarta og sál í hlaðvarpið, hef sett allt mitt upp á borðið og lagt allt bensín í að gera þætti sem gætu mögulega verið öðrum vinur, aðstoð, stuðningur, fróðleikur og hvatning til að styrkja sig, grípa sig, skilja betur, líða betur og gefa fólki sem er á sama stað vettvang til að segja frá sinni sögu og deila sínum ástríðum og viðfangsefnum.
Ég veit að það er heil kynslóð sem er vakandi, hún er sterk og eflandi og mín ósk er sú að umræðan um ofbeldi og hvernig við verndum okkur sjálf og aðra frá því að lenda í klóm ofbeldisfólks, setjum mörk, afþökkum rugl, upprætum óréttlæti og spillingu, haldi áfram að vera sjálfbær og eflist enn meira í okkar samfélagi,“ skrifar hann á Instagram.
„Til ykkar sem hafið hlustað og stoppað mig og deilt með mér ykkar frásögnum í kringum þættina, og allir viðmælendur, takk!
Ég hlakka til að sjá hvernig framhaldið verður, ég er svolítið að vaða blint í óvissuna en ég finn í sálinni að það bíður mín eitthvað sem gæti komið í staðinn. Hver veit! Kannski kem ég aftur, enda elska ég þetta verkefni mitt sem hófst árið 2018 en akkúrat núna er þetta rétt skref fyrir mig.“