Friends-leikari nældi sér læknanema

David Schwimmer er sagður vera að hitta hina 29 ára …
David Schwimmer er sagður vera að hitta hina 29 ára gömlu Eliönu Jolkovsky. Samsett mynd

Bandaríski leikarinn David Schwimmer, best þekktur fyrir hlutverk sitt sem Ross Geller í gamanþáttaröðinni Friends, er sagður vera kominn með nýja kærustu.

Sú heppna heitir Eliana Jolkovsky og er 29 ára gömul. Hún leggur stund á nám í læknisfræði við Kaliforníuháskóla í Los Angeles.

Schwimmer, 58 ára, og Jolkovsky sáust njóta kvöldverðar á veitingastaðnum Spago í Beverly Hills nú á dögunum. Leikarinn pantaði bíl á vegum Uber að loknum kvöldverði og opnaði bílhurðina, eins og sönnum herramanni sæmir, fyrir Jolkovsky, áður en hann tyllti sér við hlið hennar.

Schwimmer, sem fer með hlutverk í þáttaröðinni Goosebumps um þessar mundir, var kvæntur bresku listakonunni Zoë Buckman á árunum 2010 til 2017 og á með henni 15 ára gamla dóttur.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Gættu þess vel, sem þú vilt ekki að aðrir komist yfir. Ef þú lumar á góðri hugmynd um það hvernig þú getir aflað fjár þá er þetta rétti dagurinn til að reyna hana.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Erla Sesselja Jensdóttir
2
Jill Mansell
3
Árni Þórarinsson og Páll Kristinn Pálsson
4
Sofie Sarenbrant
5
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Gættu þess vel, sem þú vilt ekki að aðrir komist yfir. Ef þú lumar á góðri hugmynd um það hvernig þú getir aflað fjár þá er þetta rétti dagurinn til að reyna hana.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Erla Sesselja Jensdóttir
2
Jill Mansell
3
Árni Þórarinsson og Páll Kristinn Pálsson
4
Sofie Sarenbrant
5
Birgitta H. Halldórsdóttir