Hvíta húsið birti á mánudag fyrstu opinberu myndina af Melaniu Trump, forsetafrú Bandaríkjanna, síðan eiginmaður hennar, Donald Trump, sór embættiseið sem forseti Bandaríkjanna í byrjun síðustu viku.
Á myndinni, sem belgíski ljósmyndarinn Régine Mahaux tók, stendur Melania við enda langborðs, klædd svartri dragt og hvítri skyrtu.
Myndin var birt á aðgangi Hvíta hússins á samfélagsmiðlinum Instagram í gær, mánudag.
Hátt í 350.000 manns hafa þegar líkað við myndina og fjölmargir ritað athugasemdir og boðið hana velkomna í Hvíta húsið á ný.
Forsetahjónin fögnuðu 20 ára brúðkaupsafmæli sínu þann 22. janúar síðastliðinn, aðeins tveimur dögum eftir að Donald tók við embætti forseta.