Skopmynd af stóra skómáli Ingu Sæland vekur athygli

Inga Sæland í Flokki fólksins kemur á ríkisstjórnarfund.
Inga Sæland í Flokki fólksins kemur á ríkisstjórnarfund. mbl.is/Eggert

Nýjasta verk fjöllistakonunnar Lóu Hlínar Hjálmtýsdóttur dregur fram skoplega sýn á skómálið svokallaða sem hefur verið í hámælum síðan í gær. 

Forsagan er sú að Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, hringdi í skólameistara Borgarholtsskóla og jós úr skálum reiðinnar vegna týnds skópars barnabarns síns sem er af Nike-tegund.

Skóparið fannst stuttu síðar. 

Málið er sett í skoplegan búning.
Málið er sett í skoplegan búning. Teikning/Lóaboratoríum

Fengið mikil viðbrögð

Myndin sýnir fréttamann spyrja Ingu hvort skórnir hafi fundist. Áður en hún svarar reynir hún að telja upp í 86 svo hún segi ekki eitthvað „fáránlegt“. En það voru m.a. tilsvör hennar þegar hún var innt eftir viðbrögðum. 

Myndina er að finna á Facebook-síðu Lóu, Lóaboratoríum. Hún var sett inn rétt í þessu og hefur fengið mikil viðbrögð. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þær eru ófáar gáturnar sem þú færð leyst með því að nálgast verkefnin opnum huga. Mættu hlutunum með bros á vör og leystu þá ljúfmannlega.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þær eru ófáar gáturnar sem þú færð leyst með því að nálgast verkefnin opnum huga. Mættu hlutunum með bros á vör og leystu þá ljúfmannlega.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar