Hannah Jackson, blaðamaður hjá bandaríska Vogue, er lítt hrifin af svarthvítri portrettmynd af Melaniu Trump, forsetafrú Bandaríkjanna, ef marka má grein sem birtist í tískutímaritinu á þriðjudag.
Hvíta húsið birti á mánudag fyrstu opinberu myndina af Trump síðan eiginmaður hennar til 20 ára, Donald Trump, sór embættiseið sem forseta Bandaríkjanna í byrjun síðustu viku.
Í tímaritsgreininni, sem ber titilinn Melania Trump Cosplays The Apprentice in Her Official White House Portrait, segir Jackson að hin nýkrýnda forsetafrú líti frekar út eins og gestastjórnandi í raunveruleikaþættinum Lærlingurinn (e. The Apprentice), sem eiginmaður hennar stýrði um árabil við miklar vinsældir, fremur en forsetafrú.
„Hún horfir hvössum augum í myndavélina og virðist bíða spennt eftir að segja: „Þú ert rekinn“, en það voru einkunnarorð Trump í þáttunum.“
Jackson gagnrýnir einnig fataval forsetafrúarinnar, sem er klædd í smóking frá ítalska tískuhúsinu Dolce & Gabbana og hvíta skyrtu á myndinni, og líkir henni við sjálfstætt starfandi töframann (e. freelance magician).
„Kannski ætti það ekki að koma á óvart að kona sem bjó eitt sinn í gullskreyttri þakíbúð, hvers frami var svo innvinklaður í raunveruleikasjónvarpi, neiti að láta af leikaraskapnum, þrátt fyrir 248 ára gamla hefð,” skrifar Jackson.
Fyrrverandi forsetafrúr Bandaríkjanna hafa flestar klæðst kjólum eða pilsadrögtum á opinberum myndum af sér í gegnum tíðina.
Hillary Clinton, eiginkona Bill Clintons, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, breytti út af venjunni og klæddist svartri dragt þegar hún sat fyrir hjá listmálaranum Simmie Knox fyrir málverk af sér.