Bandaríski kvikmyndaframleiðandinn fyrrverandi, Harvey Weinstein, vill flýta réttarhöldum yfir sér af heilsufarsástæðum.
Endurupptaka á máli Weinstein, sem var ákærður og sakfelldur fyrir nauðgun og önnur kynferðisafbrot gegn tveimur konum, á að hefjast þann 15. apríl næstkomandi en kvikmyndaframleiðandinn fyrrverandi telur ólíklegt að hann verði á lífi þegar að því kemur.
Weinstein, sem er 72 ára, greindist með krabbamein í beinmerg síðastliðið haust og hefur glímt við ýmis heilsufarsvandamál síðustu mánuði. Hann segist eiga skammt eftir ólifað.
„Ég bið yður um að flytja réttarhöldin,” sagði Weinstein við Curtis J. Farber, sakamáladómara á Manhattan, fyrr í vikunni. „Ég get ekki meir en ég vil réttlæti fyrir mig,” sagði Weinstein sem vill ólmur hreinsa nafn sitt.
Weinstein afplánar 23 ára dóm í fangelsinu á Rikers-eyju í New York. Hann lýsti ástandinu sem ríkir innan veggja fangelsisins fyrir Farber er hann grátbað um að fá réttarhöldunum flýtt.
„Ég er bjargarlaus í neyð, ég bið þig um að færa dagsetninguna. Ég þarf að komast burt frá þessari vítisholu eins fljótt og hægt er.“
Þetta kemur fram á vef Hollywood Reporter