Hljómsveitin Merzedes Club mun koma fram í afmælisveislu FM95Blö í Laugardalshöll í maí. Merzedes Club var nokkuð áberandi árið 2008 þegar hún tók þátt í Söngvakeppni sjónvarpsins með lagið Ho ho ho we say hey hey hey eftir Barða Jóhannsson.
Merzedes Club varð þá að lúta í lægra haldi fyrir Eurobandinu sem flutti lagið Fullkomið líf. Í kjölfar Söngvakeppninnar kom Merzedes Club fram á fjölda tónleika, meðal annars í Portúgal.
Í tilkynningu frá umboðsmanni Merzedes Club er haft eftir Agli Einarssyni, einum meðlimi hljómsveitarinnar, að frábært sé fyrir íslensku þjóðina að besta hljómsveit sögunnar hafi ákveðið að snúa aftur.
„Ég er þegar byrjaður að æfa sólóin á hljómborðið til að þetta verði eins fullkomið og hægt er,“ segir Egill.