Spænsk-mexíkóska leikkonan Karla Sofía Gascón, sem hlaut á dögunum tilnefningu til Óskarsverðlaunanna fyrir leik sinn í hinni margtilnefndu mynd Jacques Audiard, Emiliu Pérez, hefur beðist afsökunar á gömlum færslum sem hún birti á samfélagsmiðlinum X, áður þekkt sem Twitter.
Þar skrifaði hún fyrir einhverjum árum síðan færslur þar sem hún meðal annars móðgaði múslima og talaði illa um George Floyd heitinn.
Blaðakonan Sarah Hagi vakti athygli á þessum umdeildu færslum leikkonunnar á samfélagsmiðlum á fimmtudag og vakti færsla hennar mikla athygli.
„Það er alveg hreint ótrúlegt að Karla Sofía Gascón skuli enn þá vera með þessi „tíst“ sýnileg. Ég hef aldrei séð „tíst“ af þessu tagi hjá einhverjum sem er að berjast fyrir því að vinna til Óskarsverðlauna,” skrifaði Hagi við skjáskot af færslum leikkonunnar.
Gascón, sem er fyrsta trans manneskjan til að hljóta tilnefningu til Óskarsverðlaunanna í 96 ára sögu hátíðarinnar, gaf frá sér yfirlýsingu þar sem hún baðst afsökunar á orðum sínum.
„Sem einstaklingur sem tilheyrir jaðarhópi, þekki ég vel þessa þjáningu. Ég harma óendanlega þann sársauka sem ég hef valdið. Allt mitt líf hef ég barist fyrir betri heimi.
Ég trúi því að ljósið muni ávallt sigra myrkrið,“ sagði leikkonan.
Gascón, 52 ára, kom út úr skápnum sem trans árið 2016 og gekkst undir kynleiðréttingu tveimur árum seinna.
Emilia Pérez, sem fjallar um lögfræðinginn Ritu sem aðstoðar háttsettan glæpaforingja við að undirgangast kynskipti, hefur vakið mikla athygli og var meðal annars valin besta myndin í flokki gaman- og söngleikjamynda á Golden Globe-verðlaunahátíðinni fyrr í mánuðinum.
Gascón flutti tilfinningaþrungna ræðu til stuðnings trans fólki á hátíðinni.