Ótrúlegar uppákomur í vikunni – frá eldamennsku til eldsvoða!

TikTok - myndbönd vikunnar.
TikTok - myndbönd vikunnar. Samsett mynd

Vik­an á TikT­ok hef­ur verið viðburðarík! Elds­voði, norður­ljósa­dýrð, flutn­ing­ar og ný tónlist – hér eru helstu ís­lensku TikT­ok-mynd­bönd­in sem vöktu at­hygli í vik­unni.

Jún­ía Lín sýn­ir list­ir sín­ar í eld­hús­inu

Jún­ía Lín Jóns­dótt­ir, tví­bura­syst­ir Lauf­eyj­ar, eld­ar kín­versk­an mat á ís­lensku. Hún er vön að búa til efni á ensku, svo þetta var skemmti­leg til­breyt­ing sem áhorf­end­ur tóku vel í. Mynd­bandið hef­ur nú fengið yfir 400.000 áhorf.

Kviknaði í bif­reið

Sem bet­ur fer hafa eng­in slys orðið á fólki.

Frá New York til Kali­forn­íu – en ekki al­veg hnökra­laust

Lísa Fals­dótt­ir flutti með fjöl­skyldu sinni frá New York til Kali­forn­íu, en ferðalagið gekk ekki al­veg eins og hún hafði von­ast til.

Norður­ljós­in lýstu upp fyrsta dag árs­ins

Ása Stein­ars­dótt­ir deil­ir mögnuðu mynd­bandi af norður­ljós­un­um sem dönsuðu á ís­lenska himn­in­um þann 1. janú­ar. Hún lýs­ir upp­lif­un­inni sem ógleym­an­legri og seg­ir ljósa­sýn­ing­una hafa verið betri en nokk­ur flug­elda­sýn­ing.

Nýtt lag frá Issa með Valdi­mar Guðmunds­syni

Tón­list­armaður­inn Ísleif­ur Atli Matth­ías­son, bet­ur þekkt­ur sem ISSI, gef­ur forsmekk af nýja lag­inu sínu „Gleyma“, sem kem­ur út á föstu­dag­inn með tón­list­ar­mann­in­um Valdi­mar Guðmunds­syni.

Draumaís­skáp­ur­inn er mætt­ur

Teboðsvin­kon­urn­ar Birta Líf Ólafs­dótt­ir og Sunn­eva Eir Ein­ars­dótt­ir hafa loks­ins fengið draumaís­skáp­inn sinn! Hann er bleik­ur, al­veg eins og hlaðvarps­stúd­íóið þeirra, og pass­ar full­kom­lega inn.

Al­vöru hvatn­ing frá Stein­unni og Hall­dóru

Leik­kon­urn­ar Stein­unn Ólína og Hall­dóra Geir­h­arðsdótt­ir sýna list­ir sín­ar á TikT­ok og koma með al­vöru hvatn­ingu!



mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Bogmaður

Sign icon Það er engin ástæða til þess að þú gerir hvaðeina sem aðrir vilja. Ef maður teygar lífið í botn, má allt eins búast við því að maður sulli niður á sig.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
2
Birgitta H. Hall­dórs­dótt­ir
3
Col­leen Hoo­ver
4
Satu Rämö
5
Lotta Lux­en­burg
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Bogmaður

Sign icon Það er engin ástæða til þess að þú gerir hvaðeina sem aðrir vilja. Ef maður teygar lífið í botn, má allt eins búast við því að maður sulli niður á sig.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
2
Birgitta H. Hall­dórs­dótt­ir
3
Col­leen Hoo­ver
4
Satu Rämö
5
Lotta Lux­en­burg