Fyrirsætan og raunveruleikaþáttastjarnan, Paige DeSorbo, má segja að hafi varpað sprengju í 9. þáttaröð af Summer House í gær.
Hún settist niður með meðleikurum sínum Amöndu Batula og Lindsay Hubbard til að ræða sambandsslitin sín við lögfræðinginn Craig Conover, sem jafnframt hefur komið fram í þáttunum Summer House.
Conover og DeSorbe slitu samvistum í desember á síðasta ári, eftir þriggja ára samband. Summe House eru raunveruleikaþættir sem hafa verið sýndir á Bravo síðan 2017. Þættirnir fylgja eftir hópi vina sem deila sumarhúsi í Hamptons, New York. Vinirnir starfa í borginni á virkum dögum og dvelja í sumarhúsinu um helgar.
Í samtali við vinkonurnar vakti DeSorbe m.a. máls á tilhæfulausum orðrómi um að hún hefði haldið fram hjá Conover, sem heldur sögusögnum sjálfur til streitu.
DeSorbo segist sjálf hafa orðið vitni að því að Conover hafi verið í skilaboðasendingum við tvær aðrar konur meðan á sambandi þeirra stóð. Svo sagði hún: „Nú ert þú dauður fyrir mér.“
Batula og DeSorbo hafa báðar sagt það firru að Conover haldi sögusögnum á lofti og í hlaðvarpi Page Six sagði Batula að það væri geðveiki af Conover að slökkva ekki á framhjáhaldssögunum.