Ástin brann upp hjá Gunna og Ágústu Evu

Gunni Hilmars og Ágústa Eva Erlendsdóttir voru að gefa út …
Gunni Hilmars og Ágústa Eva Erlendsdóttir voru að gefa út nýtt lag.

Ágústa Eva Erlendsdóttir og Gunni Hilmarsson, sem skipa dúettinn Sycamore Tree, gefa út nýtt lag í dag. Lagið er rokkballaða og heitir I Scream Your Name en í laginu bjóða þau hlustendum í ferðalag um hinn myndræna hljóðheim. 

„Lagið fjallar um augnablikið þegar elskendurnir í laginu geta ekki lengur horft fram hjá því að ástin þeirra brann hratt upp í miklu báli,“ segir Ágústa Eva.

„Þetta er öskur út í tómið, ekki til að kenna um, heldur til að leysa úr læðingi og finna skilning,“ segir Gunni. 

I Scream Your Name gefur forsmekkinn af væntanlegri þriðju breiðskífu dúettsins sem kemur út í vor. Þar eru þau að leika sér af rokk skotnu poppi í bland við þeirra draumkennda heim sem fólk þekkir vel.

Lagið er samið af Gunna Hilmars og Ágústu Evu. Arnar Guðjónsson útsetti og stjórnaði upptökum. 

Gunni og Ágústa Eva, sem eru ekki par heldur samstarfsfólk, ætla að fagna Valentínusardeginum á Kaffi Flóru í kvöld. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Að eiga er jafn gott og að fá ef maður man eftir því að þakka fyrir sig. Himintunglin senda sterkar manneskjur til þess að bera byrðarnar með þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Anna Sundbeck Klav
2
Torill Thorup
3
Colleen Hoover
5
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Að eiga er jafn gott og að fá ef maður man eftir því að þakka fyrir sig. Himintunglin senda sterkar manneskjur til þess að bera byrðarnar með þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Anna Sundbeck Klav
2
Torill Thorup
3
Colleen Hoover
5
Birgitta H. Halldórsdóttir