Neitaði fjögurra ára barni um aðgang að salerninu

Allt það helsta sem hefur dregið að sér athygli á …
Allt það helsta sem hefur dregið að sér athygli á TikTok í vikunni. Samsett mynd

Það er alltaf mikið um að vera á samfélagsmiðlinum TikTok og Íslendingar eru duglegir að setja inn skemmtilegt efni, þar sem skemmtileg grín, óvæntar uppákomur, ferðalög og hversdagslíf halda áhorf­end­um við efnið. Hér fyrir neðan er stutt yfirlit yfir það helsta sem hefur vakið athygli í vikunni.

Ein vinsælasta TikTok-stjarna heims á Íslandi

Birta Númadóttir, sem starfar í fataverslun í Reykjavík, var að eiga hefðbundinn vinnudag þegar heimsfræga samfélagsmiðlastjarnan Addison Rae birtist óvænt í versluninni. Addison Rae er fimmta vinsælasta TikTok-stjarnan í heiminum, með um 88,5 milljónir fylgjenda. Birta lýsir því að hafa fengið hjartsláttartruflanir við að sjá hana í versluninni.

@birtanumad er með hjartsláttartruflanir #addisonrae ♬ Diet Pepsi - Addison Rae

Birnir gefur innsýn í tónlistarheiminn

Tónlistamaðurinn Birnir Sigurðarson leyfir fylgjendum sínum að fylgja sér á gigg og gefur þeim um leið innsýn í tónlistarheiminn.

Foreldrafrí í Amsterdam

Áhrifavaldurinn og hlaðvarpsstjórnandinn Ástrós Traustadóttir sýnir frá klæðnaðinum sem hún valdi til að rölta um götur Amsterdam. Hún og kærastinn hennar, Adam Helgason, tóku sér stutt foreldrafrí um helgina og skruppu til borgarinnar.

Neitaði fjögurra ára barni um aðgang að salerninu

Kynlífsfræðingurinn og hlaðvarpsstjórnandinn Sara Lind deildi TikTok-myndbandi í vikunni þar sem hún segir frá óskemmtilegri reynslu sem hún varð fyrir í verslun, ásamt fjögurra ára dóttur sinni. Dóttur hennar var neitað um aðgang að salerninu, þrátt fyrir að það hafi verið mjög brýnt, sem vakti mikla umræðu í athugasemdum.

Grætur yfir fallegum skilaboðum

Tónlistarmaðurinn Júlí Heiðar deilir myndbandi af kærustu sinni, Þórdísi Björk, þar sem hún brestur í grát við að lesa öll fallegu skilaboðin sem þau hafa hlotið eftir að hafa komist áfram í Söngvakeppninni.

@juliheidar Þegar hún er drullu nett en í grunninn bara krútt 🥺❤️ #foryoupagе #fyp #songvakeppnin #12stig #eldur #juliheidar #fire @Dísa ♬ original sound - Júlí Heiðar

Læknanemi í Kaupmannahöfn

Jóel Þór er læknanemi í Kaupmannahöfn í Danmörku og sýnir frá því hvernig hefðbundinn dagur hjá honum lítur út.

Ung og efnileg listakona hér á ferð!

Unnur María Matthíasdóttir, ung listakona, sýnir listaverkið sitt, sem hefur vakið mikla athygli fyrir fegurð sína.

@artbyunnur

Þetta verk er ennþá in the works en allt að gerast😮‍💨💪

♬ original sound - MOTORSPORT FILES
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú verður að bregðast við óvæntum fréttum með stillingu og hugsa þitt mál vandlega áður en þú afræður til hvaða aðgerða þú grípur. Mundu að oft felst fegurðin í smáatriðunum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Torill Thorup
3
Colleen Hoover
4
Sofie Sarenbrant
5
Anna Sundbeck Klav
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú verður að bregðast við óvæntum fréttum með stillingu og hugsa þitt mál vandlega áður en þú afræður til hvaða aðgerða þú grípur. Mundu að oft felst fegurðin í smáatriðunum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Torill Thorup
3
Colleen Hoover
4
Sofie Sarenbrant
5
Anna Sundbeck Klav