Söngvakeppnin: Svona skiptust atkvæðin

Hálfdán Helgi og Matthías Davíð Matthíassynir mynda hljómsveitina VÆB. Þeir …
Hálfdán Helgi og Matthías Davíð Matthíassynir mynda hljómsveitina VÆB. Þeir kepptu með laginu RÓA Ljósmynd/Aðsend

Lagið RÓA bar sigur úr býtum á úrslitakvöldi Söngvakeppninnar 2025 sem fram fór í beinni útsendingu á RÚV síðasta laugardagskvöld. Lagið, sem er eftir þá Matthías Davíð Matthíasson, Hálfdán Helga Matthíasson, Inga Þór Garðarsson og Gunnar Björn Gunnarsson, hafnaði í efsta sæti bæði hjá alþjóðlegri dómnefnd og í símakosningu almennings. Lagið fékk einnig flest símaatkvæði í undanúrslitum.

Söngvakeppnin fór fram á þremur kvöldum. Fyrri tvö laugardagskvöldin kepptu fimm lög hvort kvöld og þrjú komust áfram í gegnum símakosningu almennings. Sex lög kepptu svo til úrslita þann 22. febrúar síðastliðinn en þá hafði alþjóðleg dómnefnd sjö landa helmingsvægi á móti símakosningu.

Svona skiptust atkvæðin:

Fyrri undanúrslit 8. febrúar - Símakosning almennings

  1. RÓA - VÆB: 12.649 atkvæði (30,40%)
  2. Eins og þú - Ágúst: 10.069 atkvæði (24,20%)
  3. Frelsið mitt - Stebbi JAK: 8.853 atkvæði (21,28%)
  4. Ég flýg í storminn: Birgo: 5.089 atkvæði (12,23%)
  5. Norðurljós - BIA: 4.945 atkvæði (11,89%)

Lögin RÓA, Eins og þú og Frelsið mitt komust áfram í úrslit. 

Seinni undanúrslit 15. febrúar - Símakosning almennings

  1. Þrá - Tinna: 9.846 atkvæði (23,30%)
  2. Eldur - Júlí og Dísa: 9.469 atkvæði (22,41%)
  3. Aðeins lengur - Bjarni Arason: 9.323 atkvæði (22,06%)
  4. Flugdrekar - Dagur Sig: 7.400 atkvæði (17,51%)
  5. Rísum upp - Bára Katrín: 6.218 atkvæði (14,72%)

Lögin Þrá, Eldur og Aðeins lengur komust þá áfram í úrslit.

Úrslit Söngvakeppninnar 22. febrúar - Atkvæði dómnefndar

Á úrslitakvöldinu hafði alþjóðleg dómnefnd, skipuð fulltrúum sjö landa, helmingsvægi á við atkvæði almennings. Hvert land gaf lögunum 5, 6, 7, 8, 10 og 12 stig. 

  1. RÓA - VÆB: 74 stig
  2. Fire - Júlí og Dísa: 63 stig
  3. Set Me Free - Stebbi JAK: 57 sig
  4. Words - Tinna: 53 stig
  5. Like You - Ágúst: 45 stig
  6. Aðeins lengur - Bjarni Arason: 44 stig

Úrslit Söngvakeppninnar 22. febrúar - Símakosning almennings

Símatkvæði almennings á úrslitakvöldinu voru samtals 131.956 og voru þau atkvæði reiknuð í stigafjölda út frá heildarstigafjölda dómnefndar. Almenningur gat kosið með því að hringja eða senda smáskilaboð í númer viðkomandi lags og í gegnum appið RÚV Stjörnur. 

  1. RÓA - VÆB: 36.535 atkvæði (27,7%) - 93 stig
  2. Set Me Free - Stebbi JAK: 33.202 atkvæði (25,2%) - 85 stig
  3. Fire - Júlí og Dísa: 29.010 atkvæði (22,0%) - 74 stig
  4. Aðeins lengur - Bjarni Arason: 15.266 atkvæði (11,6%) - 39 stig
  5. Like You - Ágúst: 9.104 atkvæði (6,9%) - 23 stig
  6. Words - Tinna: 8.839 atkvæði (6,7%) - 22 stig

Þegar atkvæði dómnefndar og almennings voru lögð saman lágu úrslitin fyrir.

Lokaúrslit Söngvakeppninnar 22. febrúar - Dómnefnd og símakosning

  1. RÓA - VÆB: 167 stig
  2. Set Me Free - Stebbi JAK: 142 stig
  3. Fire - Júlí og Dísa: 137 stig
  4. Aðeins lengur - Bjarni Arason:83 stig
  5. Words - Tinna: 75 stig
  6. Like You - Ágúst: 68 stig. 

Lagið RÓA, í flutningi VÆB, verður því framlag Íslands í Eurovision sem haldin verður í Basel í
Sviss í maí.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Heilbrigð sambönd koma út úr hegðun sem er samkvæm sjálfri sér. Ekki grípa frammi í fyrir öðrum ræðumönnum, jafnvel þótt þú sjáir betri leið.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Torill Thorup
3
Colleen Hoover
4
Sofie Sarenbrant
5
Kolbrún Valbergsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Heilbrigð sambönd koma út úr hegðun sem er samkvæm sjálfri sér. Ekki grípa frammi í fyrir öðrum ræðumönnum, jafnvel þótt þú sjáir betri leið.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Torill Thorup
3
Colleen Hoover
4
Sofie Sarenbrant
5
Kolbrún Valbergsdóttir