Fjölskylda Trachtenberg hafnaði krufningu

AFP/Michael Tran

Fjöl­skylda banda­rísku leik­kon­unn­ar Michelle Trachten­berg hafnaði krufn­ingu á líki henn­ar af trúarlegum ástæðum og er dánar­or­sök því óút­skýrð.

Trachtenberg, sem er best þekkt fyrir hlutverk sín í þáttaröðum á borð við Buffy the Vampire Slayer og Gossip Girl og barna- og fjölskyldumyndunum Harriet the Spy og Ice Princess, fannst látin í íbúð sinni á Manhattan á miðvikudag.

Hún var 39 ára gömul.

Leikkonan háði glímu við áfengisfíkn um nokkurra ára skeið og hafði nýlega gengist undir lifrarígræðslu og mögulega upplifað fylgikvilla í kjölfar aðgerðarinnar, en líklegt þykir að líkami hennar hafi hafnað lifrinni.

Framkvæmdi ytri skoðun

Í yfirlýsingu frá skrifstofu réttarmeinafræðings í New York-borg segir:

„Samkvæmt lýðheilsulögum geta fjölskyldur mótmælt krufningu á grundvelli trúarskoðana, að því tilskildu að enginn grunur leiki á um glæpsamlegt athæfi og/eða aðkallandi ástæður þar sem krufning er talin nauðsynleg og réttarlækni ber að virða það.“

Réttarlæknir framkvæmdi ytri skoðun á líki Trachtenberg en ólíkt er að gerðar verði frekari rannsóknir. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú hefur mikla þörf fyrir að reyna breyta öðrum og segja þeim til vegar þessa dagana. Betur færi á því að breyta viðbrögðum þínum og viðmóti gagnvart þeim.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Colleen Hoover
2
Kolbrún Valbergsdóttir
3
Sofie Sarenbrant
5
Torill Thorup
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú hefur mikla þörf fyrir að reyna breyta öðrum og segja þeim til vegar þessa dagana. Betur færi á því að breyta viðbrögðum þínum og viðmóti gagnvart þeim.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Colleen Hoover
2
Kolbrún Valbergsdóttir
3
Sofie Sarenbrant
5
Torill Thorup
Loka