„Ég hafði reynt að svipta mig lífi og var inni á geðdeild. Ég gæti ekki nefnt eitt einasta lag með Lamb of God en þeir voru með bókina þína, Dark Days, þar inni. Ég las hana og hún hjálpaði mér að setja mínar eigin raunir í samhengi. Ég stend í ævilangri þakkarskuld við þig – bókin hjálpaði mér að komast burt frá mjög dimmum stað. Og hún hjálpar mér enn.“
Eitthvað á þessa leið komst bláókunnugur maður að orði við bandaríska málmlistamanninn og rithöfundinn Randy Blythe á dögunum þegar fundum þeirra bar saman. Blythe var þá að kynna og árita nýjustu bók sína, Just Beyond The Light: Living With The War Inside My Head.
„ÞETTA er ástæðan fyrir því að ég er að þessu [skrifa bækur],“ sagði Blythe á samfélagsmiðlum sínum. „Að heyra ÞETTA og vita að ég hef haft áhrif á líf einhvers. Það eru ógnvekjandi og galnir tímar í heiminum nú um stundir. Höldum því vöku okkar og styðjum hvert annað. Vegna þess að þegar allt kemur til alls þá erum VIÐ allt sem VIÐ eigum að.“
Fyrir þau ykkar sem ekki þekkja Randy Blythe þá er hann söngvari málmbandsins Lamb of God frá Richmond í Virginíu sem notið hefur lýðhylli undanfarna þrjá áratugi. Fyrsta bók hans, Dark Days: A Memoir, kom út 2015 og vakti mikla athygli og seldist vel. Þar fjallar Blythe meðal annars um manndrápsákæru á hendur honum en hann var handtekinn í Tékklandi árið 2012 fyrir að hafa hrint aðdáanda af sviðinu á tónleikum Lamb of God með þeim afleiðingum að hann hlaut áverka sem drógu hann til dauða. Niðurstaða dómstóla var sú að Blythe hefði sannarlega hrint manninum af sviðinu en honum var samt ekki gerð refsing enda var það metið svo að ábyrgðin lægi fyrst og fremst hjá tónleikahöldurum og öryggisgæslunni. Maðurinn hefði aldrei átt að komast upp á sviðið og skjóta Blythe skelk í bringu. Málið hafði að vonum djúpstæð áhrif á Blythe.
Nýju bókinni hefur Blythe lýst sem hnitmiðuðum vegvísi um það hvernig hann sjálfur hefur reynt að halda sig við það sem hann kallar skynsamlegt sjónarhorn í lífinu, jafnvel á erfiðum tímum.
Í samtali við Leica Stories á B&H Event Space ber Blythe bækurnar tvær saman. „Í fyrri bókinni var meginþemað persónulegt uppgjör varðandi lagavandræði sem ég rataði í og margir þekkja ábyggilega til. Seinni bókin hverfist um sjónarhorn, að því er mér sýnist eftir að hafa skrifað hana, vegna þess að ég var ekki með skýra áætlun þegar ég byrjaði að skrifa bókina. Þetta snerist um að leita að ytra sjónarhorni frá öðru fólki eða reynslu sem ég hef gengið gegnum sjálfur í því augnamiði að rétta af kúrsinn og gera ekki aftur eins mikið að heimskulegum mistökum og ég hef gert gegnum árin.“
Nánar er fjallað um Randy Blythe og ritverk hans í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins.