Bandaríska leikkonan Eliza Coupe, sem er þekktust fyrir leik sinn í gamanþáttaröðunum Scrubs og Happy Endings, var nær óþekkjanleg á rauða dreglinum á Hollywood Boulevard í Los Angeles á miðvikudagskvöldið. Coupe var viðstödd frumsýningu á nýrri Netflix-þáttaröð, The Residence.
Coupe, sem er 43 ára, var mjög horuð, ekkert nema skinn og bein, grá og föl í framan og virtist vera undir áhrifum sljóvgandi lyfja þegar hún stillti sér upp fyrir ljósmyndara fyrir utan The Egyptian Theatre.
Leikkonan klæddist glitrandi gylltum kjól, svörtum pels og háum stígvélum. Hár hennar var reytt og tætt og augu hennar hálffalin undir þykku lagi af farða.
Coupe, sem fer með hlutverk þingkonunnar Margery Bay Bix í þáttaröðinni, deildi þó nokkrum myndum frá frumsýningunni í story á Instagram-síðu sinni.
The Residence er komin til sýningar á Netflix og hefur vakið mikla lukku hjá aðdáendum. Með aðalhlutverk fara Uzo Aduba, Giancarlo Esposito, Randall Park og Susan Kelechi Watson.