Fyrrverandi hafnaboltamaðurinn Brett Gardner og eiginkona hans, Jessica Gardner, staðfestu í yfirlýsingu sem birtist á samfélagsmiðlasíðu New York Yankees á sunnudag að ungur sonur þeirra væri látinn, 14 ára að aldri.
Ekkert er vitað með dánarorsök að svo stöddu.
„Það er með mikilli sorg í hjarta að við fjölskyldan tilkynnum andlát yngri sonar okkar, Miller.
Hann var aðeins 14 ára gamall og tekinn frá okkur allt of snemma eftir að hafa veikst skyndilega ásamt fleiri fjölskyldumeðlimum í fríi. Við erum með margar spurningar en lítið um svör, en við vitum að hann lést friðsamlega í svefni að morgni föstudags,“ segir meðal annars.
Í yfirlýsingunni er Miller lýst sem ljúfum dreng með smitandi bros og einstaka nærveru. Helstu áhugamál hans voru íþróttir og fiskveiðar.
Gardner, 41 árs, var leikmaður New York Yankees allan sinn atvinnuferil og lagði skóna á hilluna eftir 14 farsæl tímabil árið 2021.
Statement from Brett and Jessica Gardner:
— New York Yankees (@Yankees) March 23, 2025
With heavy hearts we are saddened to announce the passing of our youngest son, Miller. He was 14 years old and has left us far too soon after falling ill along with several other family members while on vacation. We have so many… pic.twitter.com/lBCBVmKGUe