Gestur hátíðarinnar handtekinn

Stella Soffía, framkvæmdastjóri hátíðarinnar, segir dagskrá hátíðarinnar endurspegla tíðarandann.
Stella Soffía, framkvæmdastjóri hátíðarinnar, segir dagskrá hátíðarinnar endurspegla tíðarandann. mbl.is/Karítas

Dag­skrá Alþjóðlegr­ar bók­mennta­hátíðar í Reykja­vík tek­ur í ár mið af breyttri heims­mynd. Einn dag­skrárliður­inn verður til­einkaður höf­undi sem sótti hátíðina heim fyr­ir tveim­ur árum en hef­ur nú verið fang­elsaður í Als­ír vegna skoðana sem sam­ræm­ast ekki stefnu stjórn­valda þar.

Hátíðin verður hald­in dag­ana 23.-27. apríl og fer að mestu fram í Nor­ræna hús­inu og Iðnó. Viðburðirn­ir eru ókeyp­is og opn­ir öll­um. 

Spjallað við Nó­bels­skáld

Fjöru­tíu ár eru liðin frá því Bók­mennta­hátíð var hald­in í fyrsta sinn en eina menn­ing­ar­hátíðin sem er eldri er Lista­hátíð í Reykja­vík.

„Við erum hæfi­lega íhalds­söm og það eru þeir sem koma á hátíðina líka. Það er gott að hafa hlut­ina í nokkuð föst­um skorðum. En við höf­um líka kynnt inn nýj­ung­ar. Einu sinni var meira lagt upp úr upp­lestri en tím­arn­ir breyt­ast. Ef þú vilt hlusta á bók þá nærðu þér í hljóðbók. Núna er meiri áhugi fyr­ir því að heyra um sýn höf­und­anna,“ seg­ir Stella Soffía Jó­hann­es­dótt­ir, fram­kvæmda­stjóri hátíðar­inn­ar. 

Marg­ir er­lend­ir rit­höf­und­ar eru að henn­ar sögn áhuga­sam­ir um að sækja Ísland heim og það komi hátíðinni vel. Þá hafi per­sónu­legt and­rúms­loftið sem ein­kenni hana gef­ist vel. „Höf­und­ar tala mjög um hvað þeir fái að vera ná­lægt les­end­um sín­um og les­end­ur hafa getað sest niður með höf­und­un­um og spjallað.“

Í því sam­hengi nefn­ir hún að Nó­bels­verðlauna­hafi síðasta árs, Han Kang, hafi fyr­ir nokkr­um árum setið og spjallað við fólk á hátíðinni eins og ekk­ert væri sjálf­sagðara. „Það var æðis­legt.“

Höf­und­ur hand­tek­inn

Einn af dag­skrárliðum hátíðar­inn­ar er kallaður „Fjar­staddi höf­und­ur­inn“ og er hann skipu­lagður í sam­starfi við alþjóðleg sam­tök rit­höf­unda, PEN. „Mál­frelsi og prent­frelsi er ein af meg­in­stoðum hátíðar­inn­ar og við ætl­um að end­ur­vekja þetta pró­gramm sem hef­ur legið í dvala. Einn af stofn­end­um hátíðar­inn­ar, Thor Vil­hjálms­son, hefði orðið hundrað ára í ár og við héld­um þetta alltaf í minn­ingu hans,“ seg­ir Stella.

Að þessu sinni verður viðburður­inn til­einkaður rit­höf­und­in­um Boualem Sansal frá Als­ír, sem var gest­ur hátíðar­inn­ar fyr­ir tveim­ur árum.

„Hann er al­veg ynd­is­leg­ur maður en hann er ekki vel liðinn af stjórn­völd­um í Als­ír og nú hafa þeir hand­tekið hann fyr­ir þær sak­ir að vera ósam­mála stjórn­völd­um. Á tíma­bili vissi eng­inn hvar hann var en hann hef­ur nú verið dæmd­ur í fimm ára fang­elsi. Hann er með krabba­mein, en fær ekki meðferð. Allt í einu er þetta orðið svo ná­lægt okk­ur. Hann gat ferðast hingað fyr­ir tveim­ur árum en svo ger­ist þetta.“

Ítar­legt viðtal við Stellu Soffíu má finna á menn­ing­arsíðum blaðsins, fimmtu­dag­inn 10. apríl. 

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Naut

Sign icon Sinntu aðeins þeim málum sem eru efst á baugi og láttu allt annað bíða á meðan. Fyrirgefðu fólki um leið og þú sýnir að þér þykir vænt um það.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Stein­dór Ívars­son
3
Moa Hern­gren
4
Torill Thorup
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Naut

Sign icon Sinntu aðeins þeim málum sem eru efst á baugi og láttu allt annað bíða á meðan. Fyrirgefðu fólki um leið og þú sýnir að þér þykir vænt um það.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Stein­dór Ívars­son
3
Moa Hern­gren
4
Torill Thorup