„Ef þú hefðir komið seinna hefðirðu getað dáið“

Video Player is loading.
Current Time 0:00
Duration 0:00
Loaded: 0%
Stream Type LIVE
Remaining Time 0:00
 
1x
  • Chapters
  • descriptions off, selected
  • subtitles off, selected
    • Quality

    Anna Elísa­bet Há­kon­ar­dótt­ir, lífs­k­únstner og áhrifa­vald­ur, lýs­ir því í nýj­asta þætti hlaðvarps­ins Veisl­unn­ar hvernig ferð henn­ar til Taí­lands breytt­ist á auga­bragði úr æv­in­týri yfir í lífs­hættu­legt ástand.

    Anna, sem hafði sagt upp starfi sínu hér heima á Íslandi, hafði komið sér vel fyr­ir í æf­inga­búðum í Taílandi og var kom­in með vinnu hjá hót­elkeðju.

    Hún eignaðist fljótt vin­konu, Mea­dow Hilary Hope, sem er sam­fé­lags­miðlastjarna með yfir 250 þúsund fylgj­end­ur á TikT­ok. En ferðalagið tók óvænta stefnu þegar Anna veikt­ist skyndi­lega.

    „Ég varð bara allt í einu geðveikt slöpp, með hita og kvefuð og bara að deyja,“ seg­ir Anna í þætt­in­um. Hún hélt í fyrstu að þetta væri sak­laust kvef og frestaði því að leita til lækn­is.
    Eft­ir þrjá daga leitaði hún loks á spít­ala og kom þá í ljós hversu al­var­legt ástandið var.
    „Þau sögðu bara: Ef þú hefðir komið seinna hefðirðu getað dáið.“

    „Ég skildi ekk­ert á spít­al­an­um“

    Aðstæður á spít­al­an­um reynd­ust einnig krefj­andi.

    „Þetta voru bara Taí­lend­ing­ar á spít­al­an­um, eng­inn talaði ensku. Þeir bara: „Þetta er að þér“, og ég skildi ekki neitt,“ seg­ir hún og bæt­ir við að veik­ind­in hafi vakið djúpa heimþrá.

    „Þegar maður verður veik­ur í út­lönd­um, svona langt í burtu, þá fær maður bara ógeðslega mikla heimþrá. Ég fór að velta fyr­ir mér: Af hverju er ég svona mikið að forðast að fara heim? Ég saknaði bara allra geðveikt mikið.“

    Þetta varð til þess að Anna ákvað að snúa aft­ur heim til Íslands, sterk­ari fyr­ir vikið.

    „Af því ég er eitt­hvað hrædd við það þarf ég að kom­ast yfir þessa hræðslu, “ seg­ir Anna þegar hún lýs­ir hug­ar­ástand­inu.
    Hægt er að hlusta á þátt­inn í heild sinni hér fyr­ir neðan.



    mbl.is
    Fleira áhugavert

    Stjörnuspá »

    Sporðdreki

    Sign icon Ert þú ekki með í paradís sem einhver nýtur til fullnustu? Fyrirgefðu. Geta þín til þess að einbeita þér og nema er með mesta móti.
    síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
    1
    Torill Thorup
    2
    Moa Hern­gren
    Fleira áhugavert

    Stjörnuspá »

    Sporðdreki

    Sign icon Ert þú ekki með í paradís sem einhver nýtur til fullnustu? Fyrirgefðu. Geta þín til þess að einbeita þér og nema er með mesta móti.
    síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
    1
    Torill Thorup
    2
    Moa Hern­gren