Bandaríski leikarinn John Travolta minntist sonar síns heitins, Jett Travolta, í fallegri færslu á Instagram-síðu sinni í gærdag.
Jett hefði fagnað 33 ára afmæli sínu í gær, sunnudaginn 13. apríl, hefði hann lifað.
John deildi mynd af þeim feðgum og ritaði orðin: „Til hamingju með daginn Jett - Ég sakna þín mjög mikið. Elska þig að eilífu,“ við færsluna.
Jett lést þann 2. janúar 2009 eftir að hafa fengið flog þegar fjölskyldan var í fríi á Bahamaeyjum. Hann var 16 ára gamall.
Móðir Jett, leikkonan Kelly Preston, lést í júlí 2020 eftir tveggja ára baráttu við brjóstakrabbamein.