Féll fyrir eigin hendi aðeins 54 ára

Nicky Katt.
Nicky Katt. Skjáskot/IMDb

Banda­ríski leik­ar­inn Nicholas Lea Katt, jafn­an kallaður Nicky Katt, fannst lát­inn á heim­ili sínu í Los Ang­eles þann 8. apríl síðastliðinn. Tók hann sitt eigið líf.

Syst­ir Katt, Elise Ravenscroft, staðfesti dánar­or­sök leik­ar­ans í yf­ir­lýs­ingu sem send var á fréttamiðil­inn Dea­dline í gær­dag. Hún greindi frá því að leik­ar­inn hefði svipt sig lífi eft­ir ára­langa bar­áttu við þung­lyndi.

Katt er best þekkt­ur fyr­ir hlut­verk sín í kvik­mynd­un­um Dazed & Confu­sed, Boiler Room og School of Rock og þáttaröðinni Bost­on Pu­blic.

Leik­ar­inn var frá­skil­inn og barn­laus.

Dea­dline

Embætti land­lækn­is bend­ir á að mik­il­vægt sé að þeir sem glíma við sjálfs­vígs­hugs­an­ir segi ein­hverj­um frá líðan sinni, hvort sem er aðstand­anda eða hafi sam­band við Hjálp­arsíma Rauða kross­ins 1717, eða á net­spjalli 1717.is, við hjúkr­un­ar­fræðing í net­spjalli á heilsu­vera.is eða við ráðgjafa í síma Píeta-sam­tak­anna s. 552-2218. Píeta-sam­tök­in bjóða einnig upp á ráðgjöf og stuðning fyr­ir aðstand­end­ur þeirra sem glíma við sjálfs­vígs­hugs­an­ir.

Fyr­ir þau sem misst hafa ást­vin í sjálfs­vígi bend­ir land­læknisembættið á stuðning í sorg hjá Sorg­armiðstöðinni í síma 551-4141 og hjá Píeta-sam­tök­un­um í síma 552-2218.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Fiskar

Sign icon Allt samstarf byggist á samkomulagi og málamiðlunum. Ef Gott boð berst er réttara að þiggja því að dónalegt væri að hafna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Hall­dórs­dótt­ir
2
Satu Rämö
3
Vi­veca Sten
4
Lotta Lux­en­burg
5
In­ger Wolf
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Fiskar

Sign icon Allt samstarf byggist á samkomulagi og málamiðlunum. Ef Gott boð berst er réttara að þiggja því að dónalegt væri að hafna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Hall­dórs­dótt­ir
2
Satu Rämö
3
Vi­veca Sten
4
Lotta Lux­en­burg
5
In­ger Wolf