Vilhjálmur prins sagður fyrirlíta Harry og Meghan

Það er drama innan bresku konungsfjölskyldunnar.
Það er drama innan bresku konungsfjölskyldunnar. Samsett mynd

Vil­hjálm­ur Bretaprins er sagður ætla að svipta Meg­h­an Markle og Harry prins titl­um sín­um þegar hann erf­ir breska há­sætið frá Karli III kon­ungi. 

Sam­kvæmt upp­lýs­ing­um frá heim­ild­ar­manni tíma­rits­ins Daily Be­ast hef­ur Karl sætt sig við skötu­hjú­in en Vil­hjálm­ur mun ekki gera það. „Hann hat­ar og fyr­ir­lít­ur Harry og Meg­h­an með hverju beini í lík­am­an­um, hann trú­ir að þau hafi svikið allt sem fjöl­skyld­an stend­ur fyr­ir og hug­mynd­in um að þau séu að nota kon­ung­lega stöðu sína sem sím­kort reit­ir hann til reiði.“

Heim­ild­armaður­inn held­ur því fram að Markle brjóti gegn sam­komu­lagi við Elísa­betu II drottn­ingu með því að nota HRH-titil­inn, eða „henn­ar kon­ung­lega há­tign“, til að kynna lífstílsvörumerki sitt As Ever.

Vilhjálmur Bretaprins og eiginkona hans Katrín prinsessa, eftir athöfnina á …
Vil­hjálm­ur Bretaprins og eig­in­kona hans Katrín prins­essa, eft­ir at­höfn­ina á brúðakaups­dag­inn þeirra 29. apríl 2011. Á eft­ir þeim ganga Harry prins og Phil­ipa Middlet­on, syst­ir Katrín­ar. KIR­STY WIGG­LESWORTH / POOL / AFP

Seg­ir Karl hafa misst stjórn­ina

Í hlaðvarps­viðtali síðastliðinn mánu­dag und­ir­ritaði Markle gjafa­körfu með HRH-titl­in­um, ætlaða stjórn­anda þátt­ar­ins, Jamie Kern Lima, sem inni­hélt m.a. heima­lagaða jarðarberjasósu.

„Karl hef­ur al­gjör­lega misst stjórn­ina,“ seg­ir inn­herj­inn að hluta til og bæt­ir við að það sé „aug­ljóst“ að her­tog­inn og her­togaynj­an af Sus­sex „ein­blíni á að gera síðustu ár hans að eymd“.

Talsmaður Markle hef­ur svarað þessu og seg­ir: „Harry og Meg­h­an halda HRH-titl­um sín­um, hins veg­ar, sam­kvæmt sam­komu­lagi, nota þau þá ekki í viðskipta­leg­um til­gangi.“ Talsmaður­inn vill meina að gjöf­in til þátta­stjórn­and­ans hafi verið per­sónu­leg.

„Þótt þau geti ekki leng­ur komið fram fyr­ir hönd drottn­ing­ar­inn­ar hafa Sus­sex-hjón­in gert það ljóst að allt sem þau geri muni halda uppi gild­um henn­ar há­tign­ar ... Sus­sex-hjón­in munu ekki nota HRH-titl­ana sína þar sem þau eru ekki leng­ur starf­andi meðlim­ir kon­ungs­fjöl­skyld­unn­ar.“

Page Six

Meghan í hvítu og Harry í jakkfötum.
Meg­h­an í hvítu og Harry í jakk­föt­um. AFP/​FRAZER HARRI­SON
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Bogmaður

Sign icon Stundum virðast hlutirnir frekar í lagi ef þeir eru í ólagi. Ef einhver lætur þér líða illa, er viðkomandi sennilega ekki réttur félagsskapur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Torill Thorup
3
Moa Hern­gren
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Bogmaður

Sign icon Stundum virðast hlutirnir frekar í lagi ef þeir eru í ólagi. Ef einhver lætur þér líða illa, er viðkomandi sennilega ekki réttur félagsskapur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Torill Thorup
3
Moa Hern­gren