Harry segir Bretakonung neita að tala við sig

Harry hefur í gegnum tíðina gagnrýnt fjölskyldu sína, rétt eins …
Harry hefur í gegnum tíðina gagnrýnt fjölskyldu sína, rétt eins og eiginkona hans Meghan Markle. Samsett mynd

Harry Bretaprins seg­ir Karl III Breta­kon­ung­ur neita að eiga í sam­skipt­um við sig. Hann kveðst þó ólm­ur vilja ná sátt­um við kon­ungs­fjöl­skyld­una.

Harry höfðaði mál vegna ákvörðun breskra stjórn­valda um að draga úr ör­ygg­is­gæslu fyr­ir hann þegar hann ferðast til Bret­lands. Í gær var kveðinn upp dóm­ur og laut prins­inn í lægra haldi.

Í kjöl­far aðskilnaðar Harrys frá kon­ungs­fjöl­skyld­unni árið 2020 og flutn­inga hans með fjöl­skyldu sinni til Banda­ríkj­anna gáfu yf­ir­völd það út að hann nyti ekki leng­ur sömu vernd­ar þegar hann dveldi í Bretlandi þar sem hann væri ekki að sinna op­in­ber­um embættis­verk­um.

Veit ekki hversu mikið Karl á eft­ir ólifað

Í dag mætti hann í viðtal hjá Breska rík­is­út­varp­inu þar sem hann greindi frá því að Karl vildi ekki eiga í sam­skipt­um við sig vegna máls­ins sem og vegna þess að Harry gaf út bók þar sem hann gagn­rýndi eig­in fjöl­skyldu harðlega.

„Auðvitað munu sum­ir fjöl­skyldumeðlim­ir mín­ir aldrei fyr­ir­gefa mér fyr­ir að skrifa bók. Auðvitað munu þeir aldrei fyr­ir­gefa mér fyr­ir margt. En ég myndi elska að ná sátt­um,“ sagði hann.

Harry sagði við BBC að hann vildi ekki fleiri laga­leg­ar deil­ur, sem bend­ir til þess að hann muni ekki leita með málið til Hæsta­rétt­ar.

„Lífið er dýr­mætt. Ég veit ekki hversu lang­an tíma faðir minn á eft­ir. Hann vill ekki tala við mig vegna ör­ygg­is­máls­ins,“ sagði Harry.

„Eyðilagður“ yfir úr­sk­urðinum

Karl greind­ist með ótil­greint krabba­mein í fe­brú­ar 2024 og hef­ur verið í krabba­meinsmeðferð síðan.

Prins­inn sagðist vera „ónýt­ur“ yfir niður­stöðu dóms­ins og sagði ómögu­legt fyr­ir sig að fara aft­ur til Bret­lands með fjöl­skyldu sína á ör­ugg­an hátt.

Í svari við úr­sk­urði dóm­stóls­ins sagði talsmaður kon­ungs­fjöl­skyld­unn­ar: „Öll þessi mál hafa verið skoðuð ít­rekað og vand­lega af dóm­stól­um, með sömu niður­stöðu í hvert skipti.“

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Ljón

Sign icon Þú hugsar kannski enn um þegar brotið var á þér í gamla daga, en þú hefur val hvernig þú bregst við. Meiri tilkostnaður þýðir ekki endilega betri árangur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
2
Birgitta H. Hall­dórs­dótt­ir
3
Col­leen Hoo­ver
4
Torill Thorup
5
Satu Rämö
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Ljón

Sign icon Þú hugsar kannski enn um þegar brotið var á þér í gamla daga, en þú hefur val hvernig þú bregst við. Meiri tilkostnaður þýðir ekki endilega betri árangur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
2
Birgitta H. Hall­dórs­dótt­ir
3
Col­leen Hoo­ver
4
Torill Thorup
5
Satu Rämö