Tvær milljónir manna á tónleikum Lady Gaga

Lady Gaga á tónleikunum í gær.
Lady Gaga á tónleikunum í gær. AFP

Um tvær millj­ón­ir manna komu sam­an á Copacabana-strönd í Ríó de Jan­eiró í Bras­il­íu á ókeyp­is tón­leik­um banda­rísku tón­list­ar­kon­unn­ar Lady Gaga. 

„Bras­il­ía, ég saknaði þín svo mikið,“ sagði stór­stjarn­an á fyrstu tón­leik­um sín­um í Bras­il­íu síðan árið 2012. 

Tón­leik­arn­ir voru væg­ast sagt glæsi­leg­ir og stóðu yfir í tvær klukku­stund­ir. 

AFP

100 millj­ón­ir doll­ara í hag­kerfið

„Lady Gaga er mér allt, ég hef verið aðdá­andi frá ár­inu 2008,“ sagði hinn 23 ára gamli nemi Walter Seg­undo sem ferðaðist um þrjú þúsund kíló­metra frá Sao Luis-borg til þess að vera viðstadd­ur tón­leik­ana. 

Borg­ar­stjórn Ríó tel­ur að um 2,1 millj­ón manns hafi fylgst með tón­leik­un­um sem eru tald­ir hafa skilað 100 millj­ón­um doll­ara í hag­kerfið. 

Borgarstjórn Ríó telja að um 2,1 milljón manns hafi fylgst …
Borg­ar­stjórn Ríó telja að um 2,1 millj­ón manns hafi fylgst með tón­leik­un­um. AFP

Talið er að um hálf millj­ón manns fleiri hafi verið á tón­leik­um Gaga miðað við fjöld­ann sem var á tón­leik­um Madonnu á sama stað á síðasta ári. 

Yf­ir­völd í borg­inni vilja halda áfram að halda álíka risa­tón­leika í maí­mánuði til þess að efla ferðamannaiðnaðinn á þess­um tíma árs. 

Edu­ar­do Paes borg­ar­stjóri hef­ur sagt að írska rokk­bandið U2 muni einnig koma fram. Ekki er þó kom­in dag­setn­ing á þá tón­leika. 

Um fimm þúsund manns sinntu ör­ygg­is­gæslu á tón­leik­um Gaga. 

AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú gætir fengið það á tilfinninguna í dag að einhvejum mislíki við þig eða að einhver vantreysti þér. Fatavalið getur haft áhrif á framkomu þína.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
2
Col­leen Hoo­ver
3
Birgitta H. Hall­dórs­dótt­ir
4
Torill Thorup
5
Lotta Lux­en­burg
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú gætir fengið það á tilfinninguna í dag að einhvejum mislíki við þig eða að einhver vantreysti þér. Fatavalið getur haft áhrif á framkomu þína.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
2
Col­leen Hoo­ver
3
Birgitta H. Hall­dórs­dótt­ir
4
Torill Thorup
5
Lotta Lux­en­burg