Handtekinn fyrir utan heimili Aniston

Aniston var heima þegar atvikið átti sér stað en er …
Aniston var heima þegar atvikið átti sér stað en er heil á húfi. AFP/Michael Tran

Maður var hand­tek­inn fyr­ir utan heim­ili Jenni­fer Anist­on í gær eft­ir að hafa ekið öku­tæki sínu á hliðið sem ligg­ur að heim­ili stjörn­unn­ar.

Ökumaður­inn, hinn 48 ára gamli Jimmy Wayne Carwyle, var hand­tek­inn á grun um stór­felld­ar skemmd­ir í tengsl­um við árekst­ur­inn sem átti sér stað um klukk­an 12:20 að staðar­tíma í Bel-Air hverf­inu í Los Ang­eles.

Anist­on var heima þegar at­vikið varð en er heil á húfi.

Óstaðfest hljóðupp­taka

Sam­kvæmt upp­töku af tal­stöðvar­sam­skipt­um lög­reglu, sem Broa­dcastify náði, hafði hinn grunaði „ekið öku­tæk­inu í gegn­um aðal­hliðið“.

Örygg­is­vörður hafi þá haldið hvít­um karl­manni á miðjum aldri „liggj­andi á grúfu í inn­keyrsl­unni“ með byssu sína beinda að hon­um, seg­ir ónafn­greind­ur lög­reglumaður í upp­tök­unni.

Lög­regl­an í Los Ang­eles (LAPD) hef­ur ekki staðfest að hljóðupp­tak­an sé frá at­vik­inu fyr­ir utan hús Anist­on.

NBC

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Vog

Sign icon Ákvarðanir sem virðast smávægilegar núna geta haft djúp áhrif síðar. Hugsaðu vel áður en þú samþykkir eða hafnar einhverju. Jafnvægi krefst meðvitundar.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Stein­dór Ívars­son
2
Eva Björg Ægis­dótt­ir
5
Mohlin & Nyström
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Vog

Sign icon Ákvarðanir sem virðast smávægilegar núna geta haft djúp áhrif síðar. Hugsaðu vel áður en þú samþykkir eða hafnar einhverju. Jafnvægi krefst meðvitundar.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Stein­dór Ívars­son
2
Eva Björg Ægis­dótt­ir
5
Mohlin & Nyström