„Hegðun þeirra hefur verið skelfileg“

David Beckham t.h. og sonur hans Brooklyn á heimsfrumsýningu Our …
David Beckham t.h. og sonur hans Brooklyn á heimsfrumsýningu Our Planet í Lundúnum í apríl 2019. Niklas HALLEN / AFP

Beckham-fjöl­skyld­an „ræður ekki við þessa vit­leysu leng­ur að sögn heim­ild­ar­manns Page Six. Þar vís­ar hann í deil­ur inn­an fjöl­skyld­unn­ar sem hafa verið á síðum helstu miðla und­an­far­in miss­eri, en Brook­lyn, elsti son­ur Beckham-hjón­anna, tal­ar ekki við fjöl­skyldu sína og var ekki viðstadd­ur fimm­tugsaf­mæl­is­veislu Dav­ids Beckhams í Lund­ún­um.

Fregn­ir bár­ust af því að Brook­lyn og eig­in­konu hans, Nicolu Peltz Beckham, hafi verið neitað um að fá að hitta Dav­id í Lund­ún­um í síðustu viku. Hjóna­korn­in Brook­lyn og Nicola gerðu held­ur ekki neina til­raun til að taka þátt í af­mæl­is­hátíð Dav­ids.

Nicola og Brooklyn saman á hestbaki.
Nicola og Brook­lyn sam­an á hest­baki. Skjá­skot/​In­sta­gram

Ekki líkt hon­um

Þau hafa ekki verið mynduð með for­eldr­um og systkin­um Brook­lyns síðan um jól­in en sam­band þeirra við for­eldra Nicolu er víst mjög náið.

„Að sumu leyti kem­ur þetta ekki á óvart, en ég held að eng­inn hafi trúað því að þau myndu í raun hafna 50 ára af­mæli Dav­ids þegar það voru svo marg­ir viðburðir sem þau hefðu getað farið á, eða leiðir til að verja tíma með fjöl­skyld­unni ... Hegðun þeirra hef­ur verið skelfi­leg.“

Þá mættu Brook­lyn og Nicola ekki held­ur á tísku­sýn­ingu Victoriu í Par­ís í mars. 

„Dav­id og Victoria vilja bara að Brook­lyn muni hver hann er vegna þess að þessi hegðun er ekki hann og ekk­ert í lík­ingu við það hvernig hann var al­inn upp.“

View this post on In­sta­gram

A post shared by Dav­id Beckham (@dav­idbeckham)

Page Six 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Bogmaður

Sign icon Þótt þú kunnir að meta vel sagða sögu, þarfnastu staðreynda núna. Hjörtu hafa kramist og vonir brostið .. Einbeittu þér að því sem þú átt að gera.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
2
Birgitta H. Hall­dórs­dótt­ir
3
Col­leen Hoo­ver
4
Torill Thorup
5
Satu Rämö
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Bogmaður

Sign icon Þótt þú kunnir að meta vel sagða sögu, þarfnastu staðreynda núna. Hjörtu hafa kramist og vonir brostið .. Einbeittu þér að því sem þú átt að gera.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
2
Birgitta H. Hall­dórs­dótt­ir
3
Col­leen Hoo­ver
4
Torill Thorup
5
Satu Rämö