Cornucopia, tónleikakvikmynd Bjarkar sem frumsýnd var í Lundúnum 1. maí, verður sýnd samtímis í 630 kvikmyndahúsum í 33 löndum í dag, miðvikudaginn 7. maí. Myndinni var fagnað með forsýningu á Íslandi í febrúar fyrr á þessu ári, en verður nú aftur sýnd fimm sinnum, daglega frá 7. maí til 11. maí í Bíó Paradís.
Þá hefur verið tilkynnt að Cornucopia verði sýnd á kvikmyndahátíðinni í Cannes 22. maí, en við það tækifæri verður Björk afhent umhverfisverðlaun hátíðarinnar sem nefnast The Humann Prize. Viðurkenninguna fær hún „fyrir sitt mikla framlag sitt til áhrifa í gegn um listir og aktívisma,“ eins og segir í tilkynningu frá Smekkleysu.
„Með tónlist sinni, gjörningum og áberandi sjónrænum alheimi vekur Björk vitund um viðkvæmni plánetunnar okkar og býður okkur að endurímynda samband okkar við jörðina. [...] Cornucopia er sjaldgæf tegund heildarlistar [...] hugsað sem persónulegasta og metnaðarfyllsta verkefni Bjarkar til þessa.“
Samkvæmt upplýsingum frá Smekkleysu komu hundruð einstaklinga að gerð myndarinnar, þar af fjölmargir íslenskir bæði á bak við tjöldin og á sviðinu með Björk, má þar nefna Hamrahlíðarkórinn, flautu-septettinn Viibra og Berg Þórisson. Leikstjóri kvikmyndarinnar er Ísold Uggadóttir og framleiðandi Sara Nassim.
„Cornucopia kom út á Apple Music og AppleTV+ þann 24. janúar síðastliðinn í styttri útgáfu, um klukkustund að lengd, en í bíóhúsum er kvikmyndin í fullri lengd, eða um 90 mínútur. Myndin er byggð á samnefndri tónleiksýningu þar sem Björk kannar samband mannfólks við náttúru og tækni í gegnum tónlist. Breiðskífan Utopia er í forgrunni en einnig eru flutt lög af Fossora og fyrri lög fléttast inn í frásögnina. Snert er á fjölmörgum málum sem eru listakonunni hugleikin, til að mynda umhverfismálum, jafnrétti og femínisma.
Kvikmyndin hefur fengið mikla athygli bæði hér heima og í erlendum fjölmiðlum og spannar umfjöllunin fjölda forsíðuviðtala til dæmis í GQ Magazine, Observer, Le Monde, DN.SE og svo mætti lengi telja. Björk kom einnig fram í myndviðtali í fyrsta sinn í tíu ár þar sem Zane Lowe er spyrjandi fyrir hönd Apple Music. Í sumum viðtalanna er einnig minnst á Cornucopia-bókina, 480 blaðsíðna myndabók sem skráir fimm ára ferð Cornucopiu. Hönnunin var unnin af M/M Paris og ljósmyndir Santiago Felipe prýða blaðsíðurnar. Bókin kom út á Íslandi í desember á síðasta ári og er fáanleg í helstu bókabúðum.“