„Ekkert þeirra treystir honum“

Harry Breta prins er hann mætti til réttarhaldanna í London …
Harry Breta prins er hann mætti til réttarhaldanna í London í apríl. HENRY NICHOLLS / AFP

„Harry Bretaprins er út­skúfað af kon­ungs­fjöl­skyld­unni vegna þess að ekk­ert þeirra treyst­ir hon­um – eða Meg­h­an Markle,“ seg­ir heim­ild­armaður Page Six.

„Ég held virki­lega að eng­inn treysti hon­um og það er kjarni máls­ins ... Þau treysta hvorki hon­um né Meg­h­an og þess vegna geta þau varla átt í sam­skipt­um ... Kannski er pláss til að fyr­ir­gefa en þau munu ekki gleyma.“

Þess­ar yf­ir­lýs­ing­ar koma í kjöl­farið á átak­an­legu viðtali við prins­inn á BBC í síðustu viku þar sem hann sagðist ekki vita hve mikið krabba­meins­veik­ur faðir hans, Karl III konug­unr, ætti eft­ir ólifað.

Karl III konun­ur vildi ekki hitta hann

Heim­ild­armaður vef­miðils­ins seg­ir einnig að Karl hafi neitað að hitta son sinn þegar Harry flaug til Bret­lands til að fagna 10 ára af­mæli In­vict­us-leik­anna.

Harry á að hafa sett sig í sam­band við föður sinn vegna ör­ygg­is­mála sem hann langaði að ræða við hann, en síðastliðinn föstu­dag tapaði prins­inn máli gegn bresk­um stjórn­völd­um  fyr­ir áfrýj­un­ar­dóm­stóli vegna ákvörðunar stjórn­valda um að minnka við hann ör­ygg­is­gæslu þegar hann ferðaðist til Bret­lands.

Eft­ir ákvörðun dóm­stóls­ins fór Harry í téð viðtal á BBC. Þar sagði hann föður sinn ekki vilja tala við sig vegna ör­ygg­is­mála og að end­ur­minn­ing­arn­ar, Spare, sem hann gaf út 2023 hafi jafn­framt stuðað ein­hverja fjöl­skyldumeðlimi. 

Það þótti einnig afar óviðeig­andi að Harry skyldi minn­ast á hugs­an­leg­an dauða föður síns í viðtal­inu.

Buck­ing­ham-höll­in neit­ar að tjá sig um mál Harry.

Page Six

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Steingeit

Sign icon Þú leggur þig allan fram um að geta staðið við gefin loforð. Reyndu að leggja fólki lið fremur en að gagnrýna það. Gefðu þér tíma til að sýna þig og sjá aðra.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
2
Birgitta H. Hall­dórs­dótt­ir
3
Col­leen Hoo­ver
4
Torill Thorup
5
Satu Rämö
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Steingeit

Sign icon Þú leggur þig allan fram um að geta staðið við gefin loforð. Reyndu að leggja fólki lið fremur en að gagnrýna það. Gefðu þér tíma til að sýna þig og sjá aðra.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
2
Birgitta H. Hall­dórs­dótt­ir
3
Col­leen Hoo­ver
4
Torill Thorup
5
Satu Rämö