Margrét Þórhildur á sjúkrahúsi

Margrét II, sem er 85 ára, hefur þjónað sem drottning …
Margrét II, sem er 85 ára, hefur þjónað sem drottning dönsku þjóðarinnar frá árinu 1972. BO AMSTRUP / Ritzau Scanpix / AFP

Mar­grét Þór­hild­ur hef­ur verið lögð inn á sjúkra­hús sam­kvæmt til­kynn­ingu á vef dönsku kon­ungs­hall­ar­inn­ar. 

„Í kjöl­far veik­inda Mar­grét­ar drottn­ing­ar hef­ur verið ákveðið að hún skyldi leggj­ast inn á Rigs­hospitalet [sjúkra­hús] til eft­ir­lits.“ 

Í sept­em­ber síðastliðnum slasaðist Mar­grét illa er hún brotnaði á vinstri hendi og hálsliðir urðu fyr­ir hnjaski þegar hún hrasaði og datt í Friðriks­borg­ar­höll­inni. Hún sást í fyrsta skipti op­in­ber­lega frá slys­inu við heim­sókn Höllu Tóm­as­dótt­ur for­seta og Björns Skúla­son­ar í Amalien­borg­ar­höll í októ­ber.

Mar­grét af­salaði sér krún­unni í janú­ar í fyrra vegna heilsu­brests og tók Friðrik krón­prins Dan­merk­ur við krún­unni síðar í sama mánuði.

Kongehuset

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Ljón

Sign icon Þú gætir átt það til að gefa peninga til góðgerðarstarfsemi í dag, eða eyða fé í einhvern munað. Láttu gylliboð lönd og leið og leggðu til hliðar allt sem þú mátt.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
2
Col­leen Hoo­ver
3
Torill Thorup
4
Lotta Lux­en­burg
5
Satu Rämö
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Ljón

Sign icon Þú gætir átt það til að gefa peninga til góðgerðarstarfsemi í dag, eða eyða fé í einhvern munað. Láttu gylliboð lönd og leið og leggðu til hliðar allt sem þú mátt.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
2
Col­leen Hoo­ver
3
Torill Thorup
4
Lotta Lux­en­burg
5
Satu Rämö