Danir falla fyrir frumraun Einars

Einar Lövdahl
Einar Lövdahl

Danska bóka­for­lagið Gyld­en­dal hef­ur ákveðið að gefa út skáld­sög­una Gegn­um­trekk­eft­ir Ein­ar Lövdahl. Þetta kem­ur fram í til­kynn­ingu frá umboðsskrif­stof­unni Reykja­vík Literary Agency, en þar á bæ segj­ast starfs­menn finna fyr­ir mikl­um áhuga er­lend­is á bók­inni. Þegar hef­ur verið samið um ung­verska út­gáfu við for­lagið Czer og út­gáfu á þýska málsvæðinu við sviss­neska for­lagið Kein & Aber, sem nýt­ur, að sögn, mik­illa virðing­ar fyr­ir fram­lag sitt til fag­ur­bók­mennta.

„Eva Mag­e­lund Krar­up, rit­stjóri hjá Gyld­en­dal, seg­ir mikla ánægju ríkja hjá for­laginu og að sjald­an hafi ríkt ann­ar eins ein­hug­ur inn­an rit­stjórn­ar­inn­ar um kaup á skáld­sögu eft­ir höf­und sem sé að stíga sín fyrstu skref. Í Gegn­um­trekk­isé lýst á áhrifa­mik­inn hátt stöðu ungs manns sem skort­ir fyr­ir­mynd­ir í líf­inu og þarf að marka sér eig­in spor án stuðningsnets. Ein­ari tak­ist ein­stak­lega vel að lýsa hlut­skipti og áskor­un­um aðal­per­són­unn­ar Asks og Krar­up bæt­ir við að Gegn­um­trekk­ur­sé mik­il­vægt fram­lag í slíka umræðu.“

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Naut

Sign icon Takið ekki sem sjálfsagða hluti ýmislegt sem ykkur er gefið. Reyndu ekki að stytta þér leið, því þá verður áranguri annar og minni.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Torill Thorup
3
Birgitta H. Hall­dórs­dótt­ir
5
Arn­ald­ur Indriðason
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Naut

Sign icon Takið ekki sem sjálfsagða hluti ýmislegt sem ykkur er gefið. Reyndu ekki að stytta þér leið, því þá verður áranguri annar og minni.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Torill Thorup
3
Birgitta H. Hall­dórs­dótt­ir
5
Arn­ald­ur Indriðason